MARGT HEFUR EKKI VERIÐ TEKIÐ INN Í ÞESSA UMRÆÐU.....

Og þegar það hefur verið gert kemur í ljós að hugmyndin er með öllu óframkvæmanleg.  Við skulum aðeins fara yfir það helsta:

  1. Fyrir það fyrsta þá yrði að gera alveg óhemjumiklar breytingar innandyra á húsnæðinu og þá kemur að stóra vandamálinu ALLAR INNRÉTTINGAR OG ÞAR MEÐ INNRA BYRÐI HÚSSINS, ERU FRIÐAÐAR, sem gerir það að verkum að EKKI er hægt að fara út í  neinar breytingar án þess að aflétta friðunum og ég sé ekki fyrir mér að  það verði gert.
  2. Sjómannaskólahúsið, sem slíkt stendur ekki eitt og sér, í sambandi við það eru TVÖ hús austan við meginbygginguna.  Annar er svokallað Rafmagnshús en þar fer megnið af rafmagnskennsl Vélskólans fram og eins og nafnið gefur til kynna er þar mikill rafmagnsbúnaður einnig til húsa.  Þar eru einnig Vélhermir Vélskólans og Skipstjórnarhermir Stýrimannaskólans.  Báðir þessir hermar eru gríðarlega mikil tæki og er ekki neitt einfalt mál að flytja þessi tæki og hvað þá að finna þeim anna stað.  Og annað hús er svokallað Vélahús og er í tengslum við Vélskólann.  Þar fer fram verkleg vélfræðikennsla Vélskólans ásamt smíðavinnukennslu og logsuðu.  Þetta hús er sérstaklega styrkt því þar inni eru dísilvélar af mörgu stærðum og gerðum og ég veit ekki til þess að nokkurt hús á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar sé í stakk búið til að taka við þessari starfsemi.

Þarna er aðeins talað um hluta þess sem stendur í veginum fyrir því að þessi hugmynd verði framkvæmd en margt fleira væri hægt að týna til.  Nær væri að efla starfsemina sem fyrir er í þessu hús og gera sjómannanáminu  hærra undir höfði um leið.......


mbl.is „Sjómannaskólahúsið er ætlað sjómönnum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Heldur þú að "fína fólkið" í ráðuneytunum geri sér einhverja grein fyrir þessu? Það hefur örugglega ekki "pissað í saltan sjó" né skoðað málið til þautar. 

Sigurður I B Guðmundsson, 1.10.2023 kl. 11:19

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nefnilega málið Sigurður.  Það eru ALLTAF fleiri en ein hlið á hverju máli.....

Jóhann Elíasson, 1.10.2023 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband