ÆTLUM VIÐ AÐ HALDA UPPI BYGGÐ OG ATVINNU Á ÖLLU LANDINU????

En að sjálfsögðu gerir Matvælaráðherra sér ekki nokkra grein fyrir þessu frekar en öðru.  Og ef hún ætlar sér að gera eitthvað þá er hún ekki að  láta LAGABÓKSTAFINN EITTHVAÐ VERA AÐ ÞVÆLAST FYRIR SÉR (hvalamálið er besta vitnið um það og svo var hún DÆMD fyrir lagabrot þegar hún var Umverfisráðherra).  Reyndar minnir mig að það hafi verið í Ráðherratíð Kristjáns Þórs Júlíussonar, en "landshlutakerfið" í strandveiðunum var lagt af (enda var Kristján fulltrúi stórútgerðarinnar í sjávarútvegsráðuneytinu) og nú ætlar Matvælaráðherra að festa sig í sessi sem fulltrúi stórútgerðarinnar MEÐ ÞVÍ AÐ STÖÐVA STRANDVEIÐARNAR.  Kannski heldur hún að með því geti hún bjargað sér út úr "hvalaklúðrinu???? Það koma fréttir alls staðar af landinu að allt sé sneisafullt af fiski en samt er NIÐURSKURÐUR í fiskveiðiráðgjöf HAFRÓ ár eftir ár.  Ég hef nokkuð oft, skrifað hérna á bloggið um hinar "VÍSINDALEGU" aðferðir HAFRÓ og hversu marktækar ég tel að þær séu, nú hef ég lesið blaðagreinar eftir skipstjóra sem taka undir með mér og hefur mér fundist að "undiraldan" í þessum efnum sé að þyngjast verulega.  Ég og margir aðrir hafa löngum sett fram þá kröfu að handfæraveiðar smábáta verði gefnar frjálsar og það strax.  Þá koma ráðamenn og aðrir varðhundar kerfisins (síðast fyrrverandi Fjármálaráðherra) og segja: „af hverjum á þá að TAKA þann kvóta?“ Svarið er ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ TAKA ÞANN KVÓTA AF NEINUM.  Ég hef áður talað um það að „stofnstærðarmælingarnar“ hjá HAFRÓ eru ekki nein MERKILEG VÍSINDI og engin einasta ástæða til að fara að „veiðiráðgjöf“ þeirrar stofnunar upp á kíló. Nýlega ákvað Alþjóða hafrannsóknarráðið að leggja til að AUKA veiðar á kolmunna um 81% á næsta ári og hver er ástæðan? jú það "fannst" eitthvert viðbótar magn.  Er þetta ekki vísbending um að það sé eitthvað að hafrannsóknum víðar en á Íslandi? Veiðigeta þeirra sem stunda handfæraveiðar er mjög sennilega ekki meiri en um það bil 40.000 tonn á ári án þess að nokkrar takmarkanir séu settar þar á (takmarkanir þarf reyndar að setja á fjölda báta stærð þeirra og annað).  En veðráttan og fleira setur á takmarkanir, sem þarf til og punktur og pasta.  Svo þarf að taka af margar takmarkanir sem hafa verið settar á vegna strandveiðar til dæmis þetta veiðidagakjaftæði sem þarf að útfæra miklu betur ef menn vilja endilega halda því "inni".   Að þeir megi ekki veiða nema eitthvað ákveðið magn í hverri veiðiferð er alveg FÁRÁNLEGT, suma daga veiðist vel og svo er ekkert að fá aðra daga, þannig er það bara.  Þá er eitt mál, ÞAÐ AÐ AÐEINS MEGI VERA EINN MAÐUR Á ÞESSUM STRANDVEIÐIBÁTUM ÆTTI HREINLEGA AÐ BANNA, ef eitthvað kemur uppá þar sem einungis er einn maður á bát getur sá maður ENGA BJÖRG SÉR VEITT ef eitthvað alvarlegt gerist, ÞETTA ER EINFALDLEGA ÖRYGGISATRIÐI.

Það eru að sjálfsögðu mörg rök sem eru fyrir því að STRANDVEIÐAR verði EFLDAR og það margfalt.  Eins og ég hef oft sagt áður þá er fiskveiðiráðgjöf HAFRÓ einskis virði og álíka markverð og þessi LOFTSLAGSTRÚARBRÖGÐ, sem verið er að reyna að heilaþvo landsmenn með.  Það er vel þekkt hjá sjómönnum að það virðist allt orðið fullt af þorski á grunnslóð og þeir sem eru á grásleppuveiðum eru orðið í  miklum vandræðum því það kemur svo mikill þorskur í grásleppunetin og þeir hafa bara ekki þorskkvóta þegar kemur meiri þorskur en grásleppa í grásleppunetin.  Og hvað halda menn að gerist þá?  EINS OG ÉG HEF SAGT ÁÐUR, ÞAÐ ÞARF AÐ TAKA HEILDAR FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFIÐ ALVEG Í GEGN OG HÆTTA ÞESSUM EILÍFÐAR "BÚTASAUMI"............ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband