FARIÐ Í NÝ FÖT UTANYFIR ÞAU GÖMLU OG SENNILEGA DUGIR ÞAÐ - EF EITTHVAÐ ER AÐ MARKA SKOÐANAKANNANIR

Talandi um "GULLFISKAMINNI" kjósenda er þarna komin ágætis ágætis sönnun fyrir tilvist þess.  Síðan nýr formaður tók við stjórnartaumunum í "LANDRÁÐAFYLKINGUNNI" hefur nýi formaðurinn verið að styrkja sig í sessi með ýmsum "YFIRLÝSINGUM" sem talið er að gangi vel í landsmenn og fylgi flokksins RÝKUR upp í skoðanakönnunum.  ER MINNI KJÓSENDA Á ÍSLANDI VIRKILEGA SVONA "DAPURT" AÐ FÓLK SÉ STRAX BÚIÐ AР GLEYMA ÞVÍ HVERNIG ALMENNINGUR VAR LEIKINN SÍÐAST ÞEGAR SAMFYLKINGIN VAR Í STJÓRN LANDSINS? HVAÐ HEFUR EIGINLEGA BREYST Í SAMFYLKINGUNNI SÍÐAN ÞÁ?  SVARIÐ ER EINFALT: AKKÚRAT  EKKI NEITT.  "Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá".  Það kemur mikið á óvart að Samfylkingin skuli fara með "himinskautum" í skoðanakönnunum, undir forystu Kristrúnar Frostadóttur, er kjósendur búnir að gleyma "afrekum" Samfylkingarinnar þegar hún var síðast í ríkisstjórn "INNIHALDIÐ ER ÞAÐ SAMA ÞÓTT UMBÚÐIRNAR SÉU NÝJAR"?  Hefur einhver haft fyrir því að skoða pólitískan feril Kristrúnar Frostadóttur?  Hún hóf sinn pólitíska feril í Sjálfstæðisflokknum og var víst nokkurn vegin til friðs þar í nokkur ár.  Þá er eins og hún hafi áttað sig á því að innan þess flokks var ENGIN von um framgang og það er nokkuð öruggt að hún ætlaði sér ekki að raða stólum og baka þannig að hún tók þátt í að stofna Viðreisn, en þar voru þvílíkar "kanónur" innanborðs að hún sá sinn kost vænstan að forða sér og þá var Samfylkingin næsta stoppistöð hjá henni, þar sem henni var tekið fagnandi (af öllum nema Helgu Völu Helgadóttur,segja má að hennar tími í flokknum sé á lokametrunum þó svo að fáir vilji viðurkenna það) og nú hefur hún styrkt stöðu sína rækilega með því að verða þar formaður.  ERU KJÓSENDUR MEÐ SVO MIKIÐ "GULLFISKAMINNI" AÐ ÞEIR LÁTI BLEKKJA SIG SVONA?  EF ÞETTA ER EKKI TÆKIFÆRISMENNSKA ÞÁ ER HÚN EKKI TIL  Ég veit ekki til að það að skipta út EINNI MANNESKJU GJÖRBREYTI HEILUM STJÓRNMÁLAFLOKKI....... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Jóhann Sig.= Kristrún Frostadóttir. Loforð og aftur Loforð. "Til þess eru ill dæmi að varast þau".

Sigurður I B Guðmundsson, 24.1.2024 kl. 10:50

2 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Tækifærissinnar eins og Kristrún er versta tegund stjórnmálamanna. Nei heill flokkur breytist ekki við að skipta um forustusauðinn. Sammála Sigurði dæmi til að varast þau.

Rúnar Már Bragason, 24.1.2024 kl. 10:57

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður þetta er alveg ótrúlegt og ætti að vera VÍTI til að varast.....

Jóhann Elíasson, 24.1.2024 kl. 12:07

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Satt segir þú Rúnar og það sem manni finnst dapurlegast er hversu auðtrúa kjósendur eru, þeir falla ,fyrir þessu og trúa öllu frá þessari manneskju eins og nýju neti.  VAR EKKI EINHVERN TÍMA TALAÐ UM ÚLF Í SAUÐAGÆRU???????

Jóhann Elíasson, 24.1.2024 kl. 12:13

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Ástæðan fyrir fylginu eru nýjir kjósendur. Það bætast á hverju ári um 4000 nýjir kjósendur

sem n.b. koma úr skólum þar sem vinstrið er meira og minna við kennslu og búið

að heilþvo allt sem heitir sjálfstæðar skoðanir yfir í að allt sé betra en hægrið.

Á þetta treysta VG-samfó--píratar og viðreisn. Krakka sem muna ekkert eftir fyrri árum

þessara stórhættulegu flokka.

Svo tek ég undir allt hér að ofan.

Sigurður Kristján Hjaltested, 24.1.2024 kl. 14:53

6 Smámynd: Grímur Kjartansson

Fylgi Samfylkingar er fyrst og fremst óánægjufylgi
fólk er óánægt og vill eitthvað annað án þess að vita hvað
og án þess að hugsa neitt út í að þetta "annað" er með óskiljanlega og glatað stefnu, sem í besta falli mun veita skammtíma fróun

ílkt og að pissa í skóinn til að velgja sér 

Grímur Kjartansson, 24.1.2024 kl. 20:11

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður Kristján, mér finnst bara með ólíkindum hvað Íslenskir kjósendur láta taka sig í ra......... trekk í trekk, stundum finnst manni að við kjósendur séum "masórkistar" upp til hópa og látum okkur þetta bara vel líka??????????

Jóhann Elíasson, 25.1.2024 kl. 05:44

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vonandi er þetta rétt hjá þér Grímur en ég verð samt með áhyggjur fram yfir kosningar og fer líka með BÆNIRNAR mínar.....

Jóhann Elíasson, 25.1.2024 kl. 05:46

9 identicon

Þetta er allt saman sami grauturinn í sömu skálinni, hver sem formaðurinn er, sem hrærir í honum. Þótt Kristrún sleppi ESB að sinni, þá er engu hægt að treysta um stefnu flokksins, sama hvar borið er niður í stefnuskránni. Engu að treysta þar. Svo einfalt er það mál.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 25.1.2024 kl. 13:08

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það væri gott ef fleiri sæju hlutina eins og þú Guðbjörg Snót.  Það sem helst virðist vanta hér á landi er gagnrýnin hugsun......

Jóhann Elíasson, 25.1.2024 kl. 15:50

11 Smámynd: vaskibjorn

Satt segirðu Jóhann,maður hugsar til þess með hryllingi ef þetta gengur eftir í næstu kosningum,samfylking viðreisn framsókn og kippa vg.svo um borð.

Kv. Björn

vaskibjorn, 25.1.2024 kl. 23:56

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

það er þyngra en tárum taki að hugsa sér að þetta geti gerst Björn og til að "kóróna" hryggðarmyndina ef Katrín Jakobsdóttir yrði forseti, þá fara örugglega margir að huga að því að flytja úr landi............

Jóhann Elíasson, 26.1.2024 kl. 04:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband