Fjárlagafrumvarpið á að vera raunhæft...

....en ekki einhver “fimmaurabrandari”, sem er því miður raunin með það frumvarp sem var kynnt fyrir alþjóð í gær.  Það lítur náttúrulega mjög vel út , við fyrstu sýn að fjárlagafrumvarpið sé kynnt með 30,8 milljarða króna afgangi (hefði fjárlagafrumvarpið verið gert upp í evrum væri útkoman ekki eins flott, kannski er þarna komin ein ástæðan fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki ræða upptöku evru?), en ef frumvarpið er skoðað nánar, dofnar nú “glansinn” nokkuð mikið.Fjármálaráðherra, sem er menntaður dýralæknir (kannski er þar komin skýringin á misheppnaðri efnahagsstjórn landsins).  Í sumar var HÍ að bjóða upp á ókeypis námskeið, þar sem farið var yfir grundvallaratriði hagfræðinnar, eftir að hafa farið yfir þetta fjárlagafrumvarp, er ég á því að Fjármálaráðherra hefði nú haft mjög gott af því að fara á slíkt námskeið.Nú skulum við stikla á stóru varðandi fjárlagafrumvarpið, en ég tek það fram að ég vitna ekki beint í það heldur tíni ég fram nokkur atriði, sem mér finnst þurfa athugunar við. 
  • Hagvöxtur er áætlaður 1,2% á næsta fjárlagaári, minnkar á milli ára.  En við verðum að gera okkur grein fyrir því að hagvaxtaraukningin síðustu ár hefur verið gríðarleg og eiga þar framkvæmdirnar austur á landi þar stærstan þátt en svo er annað sem fjármálaráðherra hefur ekki viljað ræða, hluti af hagvexti undanfarinna ára er borinn uppi af aukinni einkaneyslu, sem aftur er fjármögnuð með auknum lántökum heimilanna, þannig að ríkissjóður er rekinn með hagnaði (tekjuafgangi) en heimilin greiða í raun fyrir hagvöxtinn í formi aukinna skulda.  Stundum fær maður það á tilfinninguna að Fjármálaráðherra, geri sér ekki grein fyrir því að hann er að sjá um rekstur Íslands ekki bara ríkissjóðs. 
  • Gert er ráð fyrir AUKNINGU í rekstri ríkisins, það er náttúrulega algjörlega óásættanlegt að ríkisútgjöld skuli aukast óheft á þenslutímum.  Hinar margfrægu “mótvægisaðgerðir” ríkisstjórnarinnar, eru settar inn sem ein heildartala, en það er ekki gert ráð fyrir neinum  aðgerðum til þess að jafna þessa innsprautun fjármagns inn í hagkerfið, þetta kallar á verbólgu og til þess að reyna að slá á verðbólgu, getur Seðlabankinn ekkert annað gert en að HÆKKA stýrivextina, sem eru nú ansi háir í dag (stýrivextir á Íslandi eru þeir hæstu innan OECD og þótt víðar væri leitað).  Vaxtaokrið er að ganga af útflutningsgreinunum dauðum.  Hver var að tala um styrka efnahagsstjórn?
  • Það er ekki gert ráð fyrir neinni raunaukningu í kostnaði til heilbrigðismála, semsagt engin launahækkun til starfsfólks sem er í umönnunarstörfum og áframhaldandi lokun deilda og mannekkla á LSH sem er þó nóg fyrir.  Aukning til menntamála er óveruleg, þetta þýðir á mannamáli að menntamálin verða ekki til fyrirmyndar, svo til öll hækkunin sem er undir liðnum “menntamál” fer í rekstur Menntamálaráðuneytisins.  Eiginlega má segja að sú aukning sem er kynnt til sögunnar í þessu fjárlagafrumvarpi sé hinar svokölluðu “mótvægisaðgerðir” ríkisstjórnarinnar.
  • Sparnaður og aðhald eru með öllu óþekkt hugtök í þessu frumvarpi.
 Fjármálaráðherra tilkynnti það stoltur , að í þessu fjárlagafrumvarpi kvæði við nýjan tón, það ætti að taka upp meiri aga í fjárlagagerðinni (en þessar ráðstafanir eiga ekki að taka gildi fyrr en árið 2009) það á að vanda fjárlagagerðina betur, af hendi hinna ýmsu stofnana á vegum ríkisins og stofnunum á ekki að líðast að fara ekki eftir fjárlögum (engar framúrkeyrslur takk fyrir).  En væri ekki ráð að fjármálaráðherra riði á vaðið með því að kynna fjárlagafrumvarp sem væri þokkalega raunhæft, ekki er hægt að ætlast til að forráðamenn ríkisstofnana leggi fram raunhæfa kostnaðaráætlun þegar Fjármálaráðherra leggur fram fjárlagafrumvarp, sem er ekki pappírsins virði, sem það er prentað á.  Því eins og einhvers staðar er sagt: Eftir höfðinu dansa limirnir.
mbl.is Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 30,8 milljarða tekjuafgangi 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband