Niðurskurður fiskveiðiheimilda!!!!

Alltaf, þegar fréttir koma af uppsögnum í sjávarútvegsfyrirtækjum, er niðurskurði í aflaheimildum borið við.  En er það virkilega svo að þarna sé eina ástæðan á ferðinni?  Hvað með stjórnun fyrirtækjanna og rekstur þeirra yfirleitt?  Vissulega kemur þessi niðurskurður aflaheimilda illa niður á fyrirtækjunum, en mín tilfinning er sú að of mikið sé gert úr þessum þætti og þessi niðurskurður aflaheimilda, sé oft notaður sem blóraböggull annarra ástæðna, sem stjórnendur og eigendur fyrirtækjanna vilja ekki að komist í hámæli.
mbl.is Uppsagnir á Dalvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, það er náttúrulega alltaf verið að bæta lekan skrokkinn í staðinn fyrir að taka skipið í slipp og laga til fulls, þetta er bara bull í þessari frétt að norðan, ég skil það að minnstakosti þannig að rekstur þessa fyrirtækis sé búinn að vera erfiður í einhvern tíma, svo er þetta nota sem afsökun, öllu skellt á ríkistjórnina, sem er saklaus í þessu tafli, auðvaldið vill hafa þetta svona til að halda verði á kvótanum uppi. Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 2.1.2008 kl. 23:10

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, ég held nú að það hljóti að hafa mikil áhrif  sú mikla skerðing á kvóta sem nú hefur tekið gildi. Hitt er svo annað mál hvert Hafrannsókn er að fara í sínum rannsóknum, ekki traeysti ég mér til að dæma það. Kristinn Péturson hefur kynnt sér þau mál mjög vel á undanförnum árum ég les greinar hans með athygli.

kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 5.1.2008 kl. 20:20

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það sér hver maður að niðurskurður veiðiheimilda hefur þarna áhrif en það sem ég er að benda á er að hvort ekki sé verið að gera meira úr þeim þætti en efni standa til.

Jóhann Elíasson, 6.1.2008 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband