Svosem engin frétt.

Það er ekki nóg að vera góður ökumaður þegar bíllin stenst ekki samanburð.  Því má alveg "bóka" það að Alonso kemur ekki til með að keppa um titilinn þetta árið en vonandi er niðurlægingartímabilinu hjá Renault að ljúka.  Kannski að Alonso komist nú öðru hvoru á verðlaunapall á þess keppnistímabili.
mbl.is Räikkönen afskrifar Alonso
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hef ekki vit á svona kappakstri eða öðrum íþróttum, en knús á þig samt sem áður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2008 kl. 12:52

2 Smámynd: gudni.is

Vel mælt hjá þér Jóhann, ég er algjörlega sammála þér með þetta.

Það er algjörlega öruggt tel ég að Alonso mun ekki keppa um heimsmeistaratitilinn í ár, þótt hann sé frábær ökumaður. Renault er einfaldlega of langt á eftir McLaren og Ferrari ennþá. Ég er hinsvegar nokkuð viss um það að Alonso á eftir að komast á verðlaunapall í þónokkur skipti í ár og gæti jafnvel fræðilega unnið 1-2 keppnir reikna ég með?
Alonso er vissulega snilldar góður ökumaður, en það dugar ekki eitt og sér á meðan Renault bíllinn virðist vera talsvert hægari heldur en McLaren og Ferrari.

gudni.is, 12.3.2008 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband