Dæmigert fyrir yfirgang Norðmanna!!!!!

Hvað ætli sé nú að angra þessa "frændur okkar og vini"?  Eru það einhver ný vinnubrögð að færa skip til hafnar vegna gruns um að veiðidagbók sé ekki rétt færð?  Svo vilja sumir fara í myntsamstarf með þessum mönnum.
mbl.is Íslenskur togari færður til hafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér sýnist nú að það hafi verið staðfest fyrst þeir hafa greitt sektina þegjandi og hljóðalaust... verður þú ekki einu sinni að róa fyrirsagnirnar... sé ekki hvernig þetta ætti að heita yfirgangur ef menn eru að stunda það að skrá rangar tölur í veiðibækur. 

Funi (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 10:50

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ þeir eru dálítið valdsmannslegir nojararnir Jóhann minn.  Vilja sýna hver ræður ekki satt?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.1.2009 kl. 10:56

3 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Sæll Jói gaman að sjá svona sjálfskipaða sérfræðinga eins og Funa, efast um að hann hafi nokkurntíman séð afladagbók, hvað þá meira. Eitthvað er þetta loðið hjá nojaranum eina ferðina en. Getur ekki grunur um rangfærslur í afladagbækur stafað af villandi eða röngum leiðbeiningum um færslur í dagbækurnar.

Sigurbrandur Jakobsson, 20.1.2009 kl. 11:12

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nýtilkomið að GRUNUR um brot, verði til þess að skip sé fært til hafnar.  Þetta með að róa fyrirsagnirnar, get ég ekki með nokkru móti séð að þurfi, þetta er í eina skiptið sem ég hef fengið svoleiðis athugasemd og sú athugasemd kemur meira að segja frá manni, sem einhverra hluta vegna, kýs að koma ekki fram undir nafni þannig að það er ekki nokkur leið að taka neitt mark á því sem hann skrifar.

Jóhann Elíasson, 20.1.2009 kl. 12:02

5 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Blessaður vertu Jói það rignir yfir mig athugasemdum frá fólki sem þorir ekki að standa við sín orð undir nafni. Það að gagrýna skrif annara undir dulnefni er ekkert annað skortur á rökfærslu og aumingjaskapur.

Sigurbrandur Jakobsson, 20.1.2009 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband