SVIK VIÐ ÞING OG ÞJÓÐ Í BOÐI VG!!!!!!!!!

Ekki kæmi mér það á óvart að Bjarni Harðarson sæi mikið eftir því að hafa kosið VG í vor og hvatt aðra til þess sama.  Það kom berlega í ljós í þessari atkvæðagreiðslu að VG hefur verið "svínbeygt" af Samfylkingunni í þessu máli og ekki er það trú mín að forsvarsmenn VG horfi með neinni TILHLÖKKUN til næstu kosninga.
mbl.is Bjarni Harðar les Sunnlendingum pistilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamningju Ísland, loksins skynsamleg ákvörðun á Alþingi Íslendinga. heldur þú að við séum svo sérstök að við séum merkilegri en Finnar, Damir og Svíar? það er eingöngu verið að hugsa um hagsmuni almennings í þessu máli á kostnað stjórnsýslu sem býður upp á klæikuskap og spillingu. Húsnæðislán lækka um tugir og hundruðir miljóna. 20 miljón króna lán til 40 ára fer úr því að hafa greiðslubyrði upp á 17 falt lánið niður í 1,2 falt, þ.e úr 274 miljónum eftir 40 ár í 24 miljónir. Þetta eru rúmlega 800% munur sem þýðir þá mestu kjarabót sem íslenskum almenningi býðst upp á. Þarna munu færast á hverju ári 228 miljarðar frá auðmönnum til almennings. Mestu frjámagnsflutningar á milli stétta frá upphafi lýðveldisins.

Valsól (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 16:58

2 Smámynd: Guðmundur Eyjólfur Jóelsson

Ég sé ekkert eftir því að hafa kosið vinstri græna í vor ,það var og er eina rétta í stöðunni.

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson, 16.7.2009 kl. 17:04

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ert þú virkilega svo barnalegur að halda að við það eitt að ganga í ESB verði öll okkar vandamál á bak og burt?  Sannleikurinn er sá að ALLAR þessar lækkanir, sem þú talar um, ERU EINGÖNGU BUNDNAR VIÐ ÞAÐ AÐ EVRA VERÐI TEKIN UPP HÉR Á LANDI SEM GJALDMIÐILL en til þess að við tökum upp evruna uppfyllum við ENGIN skilyrði og það eru engin teikn um það að þessi skilyrði verði uppfyllt á næstu árum eða áratugum.  Ég get ekki með nokkru móti séð að almenningur hafi NEINA hagsmuni af þessu.

Jóhann Elíasson, 16.7.2009 kl. 17:10

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þingmenn gerðu það eina rétta og samþykktu að ganga til aðildarviðræðna. Þetta verður eins og með sameiningu sveitarfélaga hér í V Hún og skólamálin í kjölfarið, skólar voru sameinaðir síðla sumars á sameiningarárinu og fólkið fékk ekki tíma til að þrasa. Auðvitað var hluti foreldra reiður fyrst, en við næstu sveitarstjórnakosningar voru þeir reiðu, orðnir svo ánægðir að það hálfa væri nóg.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.7.2009 kl. 21:03

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hann Bjarni á auðvitað alla mína samúð, en ekki endilega vegna þess hvernig hann kaus í vor........

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 19.7.2009 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband