ER FÓLK NÚNA LOKSINS BÚIÐ AÐ ÁTTA SIG Á ÞVÍ AÐ AGS (IMF) ER BARA TIL TRAFALA??

Hlutverk þeirra hingað til, hefur verið svo augljóst að það vekur undrun að ekki hafi verið gert
NEITT róttækt hingað til, þeir hafa bara komið fram sem RUKKARAR og það með heldur ógeðfelldum hætti, fyrir Breta og Hollendinga.  Það hefur lítið haft að segja, hingað til, að einn og einn þingmaður stígi í pontu á Alþingi og VÆLI undan AGS því er von mín að þingmenn sameinist um þetta frumvarp og að loksins verði send þau skilaboð til Breta og Hollendinga þess efnis að við látum ekki bjóða okkur svona framferði lengur, reyndar höfum við verið allt of lengi í einhverjum "gólftuskuleik".
mbl.is Vilja hafna aðstoð AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta fólk sem stendur að þessari þingsályktunnartillögu er löngu búið að átta sig á þessu.    Hins vegar verður það ekki sagt um það fólk, sem stendur að núverandi ríkisstjórn, ríkisstjórn sem virðist hafa það eina markmið að koma landinu undir erlend yfirráð, með öllum ráðum.

Hvaða vit er til dæmis í því að hafa bankana yfirfulla af peningum, sem engum er fært að fá að láni vegna drápsvaxta og skilyrða fyrir lánveitingu, á sama tíma og púkkað er undir rassgatið á þeim sem settu landið á hliðina með glæfragangi.   

Hvernig á það líka að geta gengið að hafa við stjórnvölinn, stjórnmálaflokk sem átti að fylgjast með og á ég þar helst við fyrrverandi bankamálaráðherra BGS, sem situr sem aldrei fyrr keikur á þingi og þykist hafa efni á að mjamta kjafti um tillögur þeirra sem þó eru að reyna að vekja þessa duglausu ríkisstjórn...

Guðmundur Guðmundarson (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 10:17

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Nei fólk er ekki að átta sig á því núna fyrst, það tekur tíma að koma svona stóru máli saman og í það ástand að hægt sé að fara með það fyrir þing.

Ég tek undir með þér og vona að þingmenn standi saman og styðji þetta mál.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 1.3.2010 kl. 10:18

3 identicon

ég er sammála þessu ágæta fólki

en nú er að sjá hvað steingrímur gerir

áður en hann varð ráðherfa þá vildi hann AGS burt

en hvað  nú???

Maggi (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 10:30

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

AGS er mikilvægt í því að efnahagsáætlun okkar nýtur traust erlendis.

Við Íslendingar erum ekki beint þekktir fyrir að vera góðir í bókhaldi hingað til. Sérstaklega ekki ríkisstjórnin.

Skuldatryggingaálagið okkar mun fljúga uppí rjáfur á þeim degi sem við rekum AGS út.

Og hvar eigum við þá að fá lán og þokkalegum kjörum?

Sleggjan og Hvellurinn, 1.3.2010 kl. 12:04

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sleggjan& þruman???? eða hver sem þú ert??  Hvar erum við að fá lán í dag og ertu virkilega þannig þenkjandi að halda að MEIRIlán komi okkur út úr þeim vanda sem við erum í?  Hvaðan hefur þú það að efnahagsáætlun okkar njóti trausts erlendis vegna veru AGS?  Hvert er svo lánshæfismatið núna,  getur það LÆKKAÐ mikið meira????

Jóhann Elíasson, 1.3.2010 kl. 12:21

6 Smámynd: Friðrik Jónsson

Sammála burtu ASG strax og skila þessu sem við erum búin að fá hjá þeim,erum hvort eð er ekkert að nota þann pening og borgum okurvexti eins og asnar.

SKULDUM NÓG EIGUM EKKI AÐ BORGA LÁN MEÐ LÁNI.

Friðrik Jónsson, 1.3.2010 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband