ÞETTA GEFUR BARA AUGA LEIÐ!!!!!

Ég get bara ekki með nokkru móti skilið alla þessa umfjöllun um gengi Schumachers.  Menn hafa gengið svo langt að segja að EKKERT gangi hjá honum.  Það eru búin þrjú mót, þar af féll hann úr keppni í síðasta móti en er samt sem áður um kominn með einhver stig, sem þætti mjög góður árangur hjá einhverjum.  Menn ættu að fara að einblína meira á formúluna sem slíka og hætta að spá bara í einn einstakling.  Hann á bara eftir að ná almennilega tökum á bílnum.
mbl.is Haug: Schumacher mun sigra þegar bíllinn getur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Schumacher er maður sem fólk elskar eða elskar að hata. Ef hlutirnir ganga ekki fullkomlega, þá er auðvelt að benda í allar áttir og segja með spekingssvip að maðurinn sé ekkert sérstakur ökumaður. Sjáum hvað setur. Sjálfur held ég að hans tími se liðinn

bjorn (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 12:45

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er nokkurn veginn á sama máli Björn að því leiti að ég held hann eigi ekki eftir að bæta við sig einum heimsmeistaratitli enn en hann á örugglega eftir að vinna mót í framtíðinni.

Jóhann Elíasson, 12.4.2010 kl. 12:55

3 identicon

Þegar Schumacher hætti á sínum tíma var hann þreyttur á keppninni og sagði það opinberlega. Magnað að nokkrum árum seinna, þegar hann er kominn með eitt ár yfir fertugt, að hægt sé að tala um hvernig hann muni standa sig í framtíðinni. Hægt er að benda á að mjög fáum íþróttamönnum sem hafa verið á hæsta stalli hefur tekist að eiga í góða endurkomu í íþróttina eftir langt hlé. Menn muna eftir Erwin Magic og seinni endurkoma Jordans. En hitt er svo annað mál hve gríðarleg áhrif þessir menn hafa. Þegar Jordan kom aftur í seinna skiptið jókst áhorf á körfuboltann um tugi prósenta og eins hefur gerst við endurkomu Schumacher. Svo liðin sem þeir keppa fyrir tapa áreiðanlega ekki.

Hjalti (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband