Föstudagsgrín

     

Maður nokkur var að leggja blóm á leiði og sá álengdar að Kínverji kom með fullan bolla af hrísgrjónum og lagði á næsta leiði.

  • "Hvenær haldið þér að hinn framliðni vinur yðar muni koma upp úr gröf sinni til að borða hrísgrjónin?" Spurði hann og gætti háðs í röddinni.

 

  • "Um svipað leyti og vinur yðar kemur upp úr gröf sinni til að anda að sér ilm blómanna," svaraði Kínverjinn hæversklega.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Alltaf góður Jóhann, og góðan daginn gamli bloggvinur, það lítur út fyrir góðan dag hér, Herjólfur í Þorlákshöfn og flestir ágægðir, nema þá helst þeir sem eru sjóveikir, því þeir tíma ekki að opna klefanna fyrir farþega.

kær kveðja frá Eyjum. 

Helgi Þór Gunnarsson, 10.9.2010 kl. 06:55

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gott að heyra frá þér Helgi og sömuleiðis góðan daginn.  Ég man eftir því að þeir sem þjáðust mikið af sjóveiki, fengu sér "klefa" vel fyrir brottför og sofnuðu, margir sváfu af sér sjóveikina.  Það er í það minnsta furðuleg ráðstöfun að hafa ekki klefana í boði þegar þeir eru á annað borð til staðar.

Jóhann Elíasson, 10.9.2010 kl. 07:15

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

 Góður þessi Jóhann bloggvinur/hafðu góða helgi /Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 10.9.2010 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband