VERÐUR HLUSTAÐ NÚNA??????????

Þeir sem mest töluðu fyrir og studdu þessa framkvæmd, á  sínum tíma, töluðu mikið um það að þeir sem gagnrýndu framkvæmdina, væru engir "sérfræðingar" þar af leiðandi hefðu þeir ekkert vit á þessum málum.  Nú hefur Jarðfræðingur sagt til um það hvernig stendur á SANDBURÐINUM inn í höfnina og jafnframt segir hann að gosið í Eyjafjallajökli hafi EKKERT með þetta að gera.  Var ekkert leitað til jarðfræðinga í sambandi við þessa framkvæmd eða var það þannig að ekki mátti fá fram NEITT álit sem væri hugsanlega neikvætt því vissir aðilar ÆTLUÐU að gera höfn þarna hvað sem hver segði?????
mbl.is Landeyjahöfn verði alltaf til vandræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefurðu heyrt lögfræðinga segja álit sitt? Það fer alveg eftir því hvaða málstað þeir hafa að verja. Sumir segja bara það sem hljómar vinsælla... Þá stökkva menn eins og þú til og hoppa á vinsældarvagninn. Auðvitað pældu menn í þessu og reiknuðu, og gerðu líkan af ölduhegðun, en það er ekki alltaf hægt að sjá náttúruna 100% fyrir.

Óli Ágúst (IP-tala skráð) 1.10.2010 kl. 08:52

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það verður ekki hlustað núna, Jóhann. Það verður mokað núna!  Og ef þú spyrð snillingana segja þeir að þetta sé atvinnuskapandi.

Þorsteinn Siglaugsson, 1.10.2010 kl. 08:53

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Óli Ágúst, það var marg sinnis bent á það að "tölvulíkanið" hjá Siglingastofnun og náttúruöflin eru EKKI það sama (enda er náttúran EKKI tölvuleikur þótt ýmsir aðilar haldi það.  Nú skaltu fara varlega í "sleggjudómana" skrif mín á MÓTI þessari framkvæmd ná aftur til ársins 2007 (þú getur skoðað bloggið mitt ef þú trúir mér ekki) svo ekki er hægt með réttu að segja að ég sé að stökkva á einhvern "vinsældavagn".  Þú skalt kynna þér málin aðeins áður en þú ferð að vera með einhverjar ávirðingar sem enginn fótur er fyrir.

Þakka þér fyrir þitt innlegg Þorsteinn.  Nú þykir mér tími til kominn að menn ákveði hvenær sé komið nóg og í hve mikinn kostnað sé réttlætanlegt að setja til að halda þessu klúðri opnu fyrir Herjólf???? 

Jóhann Elíasson, 1.10.2010 kl. 09:22

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, mín kenning er sú að auðvaldið og embættismenn voru búnir að plotta þetta allt í upphafi, því fengum við Eyjamenn ekkert að segja til um samgöngur okkar hér á milli lands og Eyja. Eftir tvo til þrjá vetur segja þeir að þessa fjárfestingu verði að bjarga með lengri hafnargörðum, og þá "bingó" komin stórskipahöfn. Þetta er sú tilfinning sem ég hef haft í átta eða níu ár, því miður, en vonandi fer þetta vel, því þetta eru skattpeningarnir okkar allra landsmanna, sem klúðrast þarna.

Þú manst Jóhann að ég var á móti Bakkafjöru, en ég ákvað að vera jákvæður, en þeir vildu þessa höfn og þá skulu þeir klára dæmið!

kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 2.10.2010 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband