LOKSINS!!!!!!!

Lilja Mósesdóttir og fleiri hafa talað um það lengi að aðkoma AGS að efnahagsmálum hér á landi hafi verið algjörlega óþörf og jafnvel skaðleg fyrir Íslenskt efnahagslíf.  Ef farið er yfir aðgerðirnar, sem AGS hefur lagt blessun sína yfir, sést það að þetta er alveg rétt ályktað hjá þeim og síður en svo of djúpt tekið í árina.  Hér hafa orðið alveg stórkostlegar skattahækkanir á almenning og fyrirtæki, rekstrarumhverfi fyrirtækja er orðið með öllu óviðunandi, Bretar og Hollendingar ætluðu sér lengi vel að nota AGS til að þvinga Íslendinga til að greiða Ices(L)ave, AGS hefur haldið vöxtum hér á landi óeðlilega háum,...................  Nú er loksins komin fram tillaga á Alþingi um að við losum okkur við þessa óværu en það má reikna með að Gunnarsstaða-Móri berist gegn þeirri tillögu með kjafti og klóm því ekki hefur hann verið að vinna hingað til með hagsmuni lands og þjóðar í huga.
mbl.is Vilja efnahagsáætlun án aðkomu AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Til Hamingju með daginn Jóhann !

Og mæltu manna heilastur, hér er mitt innlegg: http://keh.blog.is/blog/keh/entry/1121749/

 Heyrumst við hentugleika.

MBKV að utan

KH

Kristján Hilmarsson, 1.12.2010 kl. 15:55

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Hilmar og sömuleiðis.  Það verður gaman að hera frá þér.

Jóhann Elíasson, 1.12.2010 kl. 16:01

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fyrirgefðu Kristján að ég skildi fara vitlaust með nafnið þitt, þarna varð fljótfærnin mér fjötur um fót.

Jóhann Elíasson, 1.12.2010 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband