EINA LEIÐIN TIL AÐ BJARGA EVRUNNI ER AÐ HÆTTA MEÐ HANA............

En það eru fleiri lönd á evrusvæðinu í vandræðum en Grikkland og ef "lausnin" fyrir þau er sú að hætta með evruna þá minnkar nú evrusvæðið nokkuð mikið og endar sjálfsagt með því að aðeins tvö lönd verða með evruna, Þýskaland og Frakkland, þá verður farið að velta fyrir sér að leggja hana alveg niður.  Framtíð evrunnar er örugglega björt að mati INNLIMUNARSINNA í það minnsta hefur evran verið helsti kostur þess að ganga í ESB að þeirra mati.


mbl.is Grikkir eiga að hætta með evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er ótrúleg blinda í gangi hér í Evrópusinnum, þeir heyra ekki, sjá ekki og vita ekkert í sinn haus. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.7.2011 kl. 17:47

2 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

En ef löndin sem eru í efnahagsvandræðum sleppa evrunni, verður Evran þá ekki bara í Þýskalandi? Hver var þá tilgangurinn með því að kasta gjalmiðlum svo sem markinu?

Brynjar Þór Guðmundsson, 21.7.2011 kl. 18:35

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er spurning sem seint verður svarað, Brynjar svörin verða örugglega jafn mörg og þeir sem verða spurðir og eftir því hvort þeir eru hlynntir innlimun eða ekki.

Jóhann Elíasson, 21.7.2011 kl. 19:34

4 Smámynd: Vendetta

Þjóðverjar voru á sínum tíma ekkert fjálgir í það að kasta þýzka markinu fyrir róða og fá evru í staðinn. Þeir féllust aðeins á það ef ECB fengi að vera í Þýzkalandi (Frankfurt). Þannig gætu Þjóðverjar stýrt í raun peningastefnu sambandsins. DM var á síðasta hluta 20. aldarinnar sterkasti gjaldmiðillinn í Evrópu (og kannski jafnvel heiminum). Sá næststerkasti var hollenzk guilden, sem var jafnvel meira virði en DM.

Það er ekkert tiltökumál fyrir Þjóðverja að taka aftur upp markið og það er það sem mun gerast á endanum. Árið 2016, spái ég. Þá fyrst munu embættismenn í Bruxelles og leiðtogar í aðildarríkjunum viðurkenna að evru-verkefnið voru mistök frá byrjun. Þá munu aðrar Evrópuþjóðir taka upp "nýjar" myntir (eða gömlu myntirnar með meira virði), sem í byrjun munu vera á háu gengi og fá síðan að síga mismunandi mikið allt eftir efnahag hvers ríkis fyrir sig.

Því að eins og Brynjar segir, hver er tilgangurinn að hafa evruna, ef aðeins Þýzkaland og Frakkland eru með hana? Og hvenær kæmi röðin að Frakklandi að fá björgunarpakka og þá frá hverjum?

Vendetta, 21.7.2011 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband