ÞARNA ER HANN AÐ TALA UM GLÆPSAMLEGT ATHÆFI..........

Og það er mjög alvarlegt að koma með svona fullyrðingar án nokkurra röksemda.  Það eru öll félög og fyrirtæki skyldug til þess að skila endurskoðuðum reikningum.  Þessir reikningar eru síðan lagðir fyrir stjórnina til samþykktar  Á þessu sést að EKKI er nein einfalt mál að "leyna fjárhagslegri stöðu félagsins fyrir stjórninni".  Ef ársreikningur lyggur ekki fyrir á réttum tíma er það Á ÁBYRGÐ stjórnar og þá sérstaklega stjórnarformanns að kalla eftir þessum upplýsingum.  Á þessu sést að það er ekki einfalt mál að "blekkja" stjórnina að neinu leiti og ef það er gert verður að undibúa það vel og þá er nokkuð ljóst að "brotaviljinn" er mikill.............
mbl.is Fyrri stjórn leynd upplýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er mjög einfalt að gera þetta ef stjórnarmenn þekkja ekki skildur sínar og kunna ekki að lesa efnahags- og rekstrarreikninga.

Ef efnahagsreikningar og rekstrarreikningar passa ekki saman og ef miklar færslur eru á ákveðnum reikningum þá gæti eitthvað verið að.

Þú hefur líklega farið yfir marga rekstrarreikninga, líklega fleiri en ég og þekkir þetta miklu betur.

Stefán (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 12:54

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er reyndar ekkert að reyna að upphefja sjálfan mig með þessari færslu einfaldlega að benda á að stjórnarseta hjá félagi eða fyrirtæki er ekki upp á punt og í rauninni geta stjórnarmenn ekki "falið" sig á bak við það að þeir hafi verið blekktir.  Þeirra ábyrgð er meiri en lýtur oft út fyrir.................

Jóhann Elíasson, 20.11.2011 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband