ERU MEÐLIMIR PENINGAMÁLASTEFNUNEFNDAR MEÐ HÁLM Í HEILASTAÐ?????

Þessi verðbólga sem er að hrjá okkur er að stærstum hluta til komin vegna ERLENDRA KOSTNAÐARVERÐSHÆKKANA og HÆKKUNAR ÍBÚÐARHÚSNÆÐISVERÐSSTÝRIVAXTASTIGIÐ hefur ENGIN áhrif á þessa verðbólgu.  Eina sem þessi stýrivaxtahækkun gerir er að HÆKKAvaxtastigið í landinu (sem virðist vera aðkallandi) og kemur enn frekar í veg fyrir framkvæmdir og að atvinnulífið fari af stað......
mbl.is Vextir gætu hækkað meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já það er ekki laust við að þessi staða valdi hugarangri vegna þess að það er ennþá hvergi farið að henda hjólum atvinnulífsins í gang eða hvað þá komin raunveruleg leiðrétting heimilunum eða fyrirtækjunum til sem urðu ílla fyrir þessu hruni ekki síður en fjármálafyrirtækin sem hafa fengið ALLA og ég segi ALLA þá hjálp frá ríkinu sem þau þurftu á sama tíma og þeir sem að halda þessu öllu saman uppi þurfa að fara endalausan eltingarleik við að fá hjálp ef hún svo fæst á annað borð....

110% leiðin er engin hjálp verð ég bara að segja...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 21.3.2012 kl. 12:46

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það segir sig nú alveg sjálft að 110% leiðin er ekkert annað en framlenging á "hengingarólinni".  Segjum að þú værir að kaupa eitthvað og ætlaðir að fá lán fyrir því öllu og 10% að auki til að hafa eitthvað rekstrarfé, ég þori að hengja mig uppá það að þú fengir þetta ekki það yrði bara sagt við þig að það væri ENGINN möguleiki á því að þú gætir GREITT lánið þótt það væri án vaxta.

Jóhann Elíasson, 21.3.2012 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband