FYRIRMYNDARÞJÓNUSTA

Þegar veitt er framúrskarandi þjónusta finnst mér það vera skylda mín að láta vita af því og sýna þakklæti.  Þannig er mál með vexti, að ég hef verið að leita að bók sem kom út á árunum 1997 eða1998 og virðist vera ófáanleg.  Eftir að hafa leita á flestum stöðum á stór Hafnarfjarðarsvæðinu án árangurs, hringdi ég í Sunnlenska bókakaffið á Selfossi.  Konan sem ég talaði við sagðist vera í einhverju basli með tölvukerfið og spurði mig um nafn bókarinnar og höfund og spurði hvort væri í lagi að hún hringdi í mig þegar hún væri búin að koma lagi á tölvuna, auðvitað samþykkti ég það og lagði svo á.  Ég var rétt búinn að ná mér í kaffi þegar konan hringdi aftur í mig, hún sagðist því miður ekki hafa fundið þessa bók.  Að fá svona lipra og góða þjónustu er alls ekki sjálfgefið og ber  manni að geta þess sem vel er gert.  Það er alveg á hreinu að þarna á ég eftir að koma og alls ekki loku fyrir það skotið að ég eigi eftir að gera mér ferð á Selfoss, að Austurgötu 22, svo hef ég séð að þarna er líka margt MJÖG áhugavert.........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er gaman að þessu, svona viðmót og þjónusta er því miður allt of fátíð. Það er oftar sem maður ákveður að koma aldrei aftur í viðkomandi verslun vegna hryssingslegrar framkomu starfsfólks.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 4.6.2012 kl. 14:32

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Axel, upplifunin var góð og óska ég þessu fólki alls hins besta í framtíðinni.

Jóhann Elíasson, 4.6.2012 kl. 14:39

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er ekki allt gott í kringum Bjarna,þarna angar allt af kaffi og bókum.

Helga Kristjánsdóttir, 4.6.2012 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband