ER INGVI HRAFN BARA KJAFTFOR BULLARI??????

Ég las nú umrætt viðtal, við Ingva Hrafn í sunnudagsblaðinu og einstaka sinnum hef ég horft á "Hrafnaþingið" á ÍNN.  Til að byrja með voru þættirnir ágætir og þokkalega fram settir en nú í seinni tíð er farið að bera svolítið við annan tón.  Þáttastjórnandinn (Ingvi Hrafn) er orðinn mun agressívari, orðljótari, ber meira í borðið, málflutningur er orðinn mun einstrengingslegri og öfgafyllri í ummælum sínum, grípur fram í fyrir viðmælendum sínum (það er orðinn viðburður ef menn fá að klára heila setningu) og sérstaklega ef menn eru ekki á sömu skoðun og hann,  það skín í gegn um alla umfjöllun og þáttagerð hverjir það eru sem greiða MEST til þessarar sjónvarpstöðvar hans.  Þó var það umfjöllun hans um "RIB" bátana sem fyllti mælinn algjörlega, fannst mér.  Hann fór til Húsavíkur í boði Gentle Giants (hvalaskoðunarfyrirtæki sem gerir út tvo Rib báta, annar er 12 manna og hinn er 24 manna).  Hann fór á þeirra vegum í hvalaskoðun og þeir "mötuðu" hann á þeirra hlið á málinu og hann fór eins og hlýðinn hundur í sjónvarpið og úthúðaði Samgöngustofu  (áður Siglingastofnun), ráðherra, embættismönnum sem komu að málinu og sakaði þá um valdníðslu og þröngsýni og ekki sparaði hann stóru orðin og ljótu eða dró af sér við að berja í borðið.  Ég get að sumu leiti verið sammála honum með það að ríkisstjórnin hefur ekki farið sérstaklega vel og hratt af stað.  Þessi hundrað daga áætlun, sem hann talar um í viðtalinu, er bara bull og kjaftæði og á bara hreinlega engan veginn við í þessu tilfelli.  En verðum við ekki að taka aðeins tillit til þess að það er hámark sumarleyfistímans og þjóðfélagið er allt meira og minna lamað fram á haustið?  Stærstu mistökin, finnst mér, vera að setja ekki bráðbirgðalög á "launaleiðréttingu" forstöðumanna ríkisstofnanna.  En er ekki betra að gera sér grein fyrir að oftast er fleiri en ein hlið á málunum.
mbl.is Eru Sigmundur og Bjarni snákaolíusölumenn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband