ERU MENN EKKI AÐEINS AÐ OFMETA EIGIÐ ÁGÆTI??????

Ekki er ég að efast um að Halldór Halldórsson, sé mjög hæfur maður og fullkomlega fær um að gegna oddvitahlutverki hvar sem er, en ég stórefast um að svo illa sé komið fyrir borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að það þurfi að leita útfyrir borgarmörkin eftir oddvita.  Hvaðan sem þessi hugmynd er komin finnst mér hún vera lítilsvirðing við núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
mbl.is Halldór gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er þess fullviss að Halldór átti ekki hugmyndina sjálfur, heldur flokkseigendafélagið. Flokkseigandafélagið telur að flokkurinn eigi borgina og getur illa sætt sig við minnihluta. Þegar þannig stendur á tapa þeir gersamlega áttum og grípa til vanhugsaðra aðgerða, þjakaðir af örvæntingu. T.d. eins og þegar Markús var dregin út úr útvarpinu, Árni Sigfússon var gerður að borgarstjóra korteri fyrir kosningar og það örvænting þeirra jaðraði við brjálsemi þegar þeir svo dubbuðu Björn Bjarna upp í hlutverk borgarstjórakandídats.

Flokkseigendurnir  hafa nú, í angist sinni,  leitað til Halldórs til bjargar í borginni og gera þannig enn og aftur lítið úr því fólki sem hefur af elju verið að vinna sig upp innan borgarstjórnarflokksins. Halldór hlýðir auðvitað kallinu af skyldurækni við flokkinn, en ég er ekki komin til að sjá hann þrífast vel í minnihluta með fólkinu sem ýtt var til hliðar fyrir hann.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.10.2013 kl. 15:05

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er algjörlega sammála þessu áliti þínu.  En ég get ekki annað en sett spurningamerki við framgöngu  Halldórs sjálfs í þessu máli, það er engu líkara en að almennir flokksmenn séu viljalaus verfæri í þessum hrókeringum...............

Jóhann Elíasson, 22.10.2013 kl. 16:44

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ég kaupi þessar kenningar ykkar Axel, Jóhann. Það er þannig innan Sjálfsæðisflokksins að menn verða að hlýða öllu, það hef ég séð hér í Eyjum.

Kærar kveðjur frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 22.10.2013 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband