TALANDI UM AÐ KASTA STEINUM ÚR GLERHÚSI............................

Sumir ættu nú ekki að vera að gagnrýna endurkomu hjá öðrum.  Ekki hef ég nú mikla trú á að þeir ætli sér eingöngu að vera með gamalt efni sem allir þekkja þegar þeir koma saman aftur.  Þau eru nú ekki mörg ný lög hjá Rolling Stones, sem hafa komið eftir 1990.............................
mbl.is Mick Jagger fárast yfir gamlingjunum í Monty Python
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Þeir rúlla nú hreinlega bara steinarnir úr glerhúsinu hjá Mikka. Ég fylgdist svolítið með Rollingunum sem ungabarn- en síðan ekki söguna meir. Jethro Tull og Ian Anderson hafa hins vegar lifað með mér og gera það sennilega fram á gamals aldur.

Jósef Smári Ásmundsson, 2.7.2014 kl. 13:43

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna er ég alveg sammála, músíkin frá Jethro Tull lifir mun betur og svo eru  aðilar sem er lítið minnst á en mér hefur alltaf þótt mikið til um Emerson, Lake & Palmer.

Jóhann Elíasson, 2.7.2014 kl. 16:50

3 identicon

Mig langar að spyrja hvort þið horfðu á myndbandið.

Það að þið takið kaldhæðninni alvarlega sýnir að þið hafið ekki áttað ykkur á að þetta sé auglýsing til að kynna nýju þættina og var ætlaður sem brandari. Allt efnið er sviðsett og endurspeglar áreiðanlega ekki raunverulegar skoðanir hans Jagger, fyrst að hann kaus að taka þátt í þessu.

Einar (IP-tala skráð) 2.7.2014 kl. 17:37

4 identicon

Þú hefur greinilega ekki lesið fréttina til enda né horft á myndbandið ;)

Stefán (IP-tala skráð) 2.7.2014 kl. 19:08

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú,reyndar horfði ég á myndbandið og sá kaldhæðnina en er ekki einhverssstaðar sagt "Að öllu gamni fylgi einhver alvara".  Einar, hvernig þú túlkar þetta myndband er ekki endilega túlkun allra.

Jóhann Elíasson, 2.7.2014 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband