"FERRARI IS BACK" OG YFIRBURÐIR MERCEDES ÚR SÖGUNNI

Þegar öryggisbíllinn kom út snemma í keppninni og báðir ökuþórar Mercedes fóru inn en Vettel hélt áfram á brautinni, má segja að úrslitin hafi verið ráðin.  Hann tók forystuna og í einu skiptin sem hann lét hana af hendi, var í þessi tvö skipti, sem hann tók þjónustuhlé og í bæði skiptin var það Hamilton, sem fékk að vera í forystu en bara í skamma stund.  Aksturinn hjá þessum manni (Vettel) er hrein  og bein unun og hann er svo "ískaldur" og einbeittur, hann gerir hreinlega ekki mistök.  Það hefur verið svolítið sárt fyrir Christian Horner (stjóra Red Bull), þegar Vettel "hringaði" bæði Daniel Ricciardo og Daniel Kyat.  Það er greinilega eitthvað Ferrari - DNA eftir í Niki Lauda, því hann sagði við Eddie Jordan að ef einhver ynni Mercedes þyrfti það helst að vera Ferrari, það ylli minnstum sársauka.  Kimi Raikkonen ók líka af miklum  glæsibrag, því eftir að afturdekk sprakk hjá honum rétt eftir ræsingu og hann þurfti að fara á þjónustusvæðið og skipta um dekk, sem varð til þess að hann varð lng aftastur.  En hægt og hljótt vann hann sig upp og endaði í fjórða sæti.  Þetta sýnir betur en margt annað hversu góður bíllinn er orðinn. og margir vilja meina að yfirburðum Mercedes sé lokið og enn einu sinni sé tími Ferrari runninn upp.  Mjög áhugaverður var árangur Max Verstappen en þessi ungi ökumaður, endaði í sjöunda sæti og átti þessi yngsti formúlu 1 ökumaður sögunnar hreint frábæra keppni og öruggt að hann á eftir að láta finna fyrir sé í framtíðinni og mörg stórkostleg tilþrif sem hann sýndi í dag. 


mbl.is Ferrari brilleraði á herfræðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband