EKKI VERSTA NIÐURSTAÐAN EF TÍMINN ER VEL NOTAÐUR

Það hefur ekki dulist nokkrum manni að þetta verkfall er orðið meiri pólitísk barátta en kjarabarátta.  Það fer ekki á milli mála að vissir aðilar innan BHM hafa verið nokkuð mikið pólitískt litaðir í sínum aðgerðum og mjög sennilega hefur það gert deiluna harðari.  Með því að setja lög á verkfallið skapast svigrúm hjá fólki til að ná aðeins áttum og hugsa dæmið svolítið raunhæft, en það hefur aðeins setið á hakanum í þessu verkfalli.  Þá skapast tækifæri til þess að umbylta alveg heilbrigðiskerfinu, sem er löngu tímabært.  Mikill meirihluti þess BHM fólks, sem er í verfalli, er heilbrigðisstarfsfólk og það hefur sýnt sig að heilbrigðisstarfsfólk á ekki að vera með verkfallsréttSvona ástand, eins og hefur skapast í þessu verkfalli, er með öllu óboðlegt og það er alls ekki ásættanlegt að landsmenn geti átt von á svona ástandi aftur.  Það er mín tillaga að tíminn verði notaður til að semja við þetta fólk um ásættanleg laun, síðan verði verkfallsrétturinn hjá heilbrigðisstarfsmönnum aflagður og þessar starfsstéttir settar undir kjararáð.  Ég held að allir séu sammála um að þetta fólk á að hafa góð laun og held að þetta sé skásta leiðin. 


mbl.is „Lög eru versta niðurstaðan“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Eiginlega orðið brýnt að setja lög,en þeir munu kalla það valdbeitingu eða kúgun.

Helga Kristjánsdóttir, 11.6.2015 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband