HEIMSBYGGÐINNI STAFAR SÍÐUR EN SVO MEIRI HÆTTA AF RÚSSLANDI EN BANDARÍKJUNUM OG ESB

Eða eru tilburðir ESB (Þjóðverja), til stofnunar "þúsund ára ríkisins" það lymskulegir og vel faldir að einfeldningarnir, sem í daglegu tali nefnast INNLIMUNARSINNAR, eru ekki enn búnir að átta sig á því hvað er í gangi???


mbl.is Sakar ráðherra um heimsku og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ég tel,að það sé borin von, að Samfóliðið átti sig á villu díns vegar. AFSTAÐA ÞEIRRA MÁ DKOÐAST DRM VILLUTRÚ.

BLOGGVINAR KVEÐJA,

kristjan9

Kristján P. Gudmundsson, 14.8.2015 kl. 10:55

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Þrátt fyrir að hafa upplifað skrítna hluti í pólitík,er maður enn að undrast stefnubreytingu utanríkisráðherra. Það hefur verið svo einkennilega hljótt í röðum innlimunarsinna um störf hans,þar til þeir taka að verja hann. Var þetta planað,? Hvers vegna tók hann að hanga svo lengi úti í Ukrínu á kostnað ríkis Íslands? 

Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2015 kl. 12:44

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ef við setjum Tékkóslóvakíu í stað Krímskaga, Austurríki í stað austurhluta Úkraínu og Þýskaland í stað Rússlands og hugsum til fjórða áratugar síðustu aldar í stað nútímans þá sjáum við hvaða hagsmunir lyggja undir.

Staðreyndin er sú að Pútín mun ekki stoppa með útþennslustefnu sína fyrr en hann er stoppaður af. Hann hefur sjálfur sagt að fall Sovétríkjanna hafi verið „mestu pólitísku hamfarir síðustu aldar“ og er að reyna að endurreisa Sovétríkin. Í því felst að innlima fyrrum ríki Sovétríkjanna undir Rússland.

 

Ef Rússar verða ekki stoppaðir af núna þá munu þeir taka yfir einhvert annað ríki næst og svo koll af kolli þangað til þeir verða stoppaðir af það er ef þá er unnt að stoppa þá af. Þá mun fara fyrir lítið stuðningur okkar við frelsisbaráttu Eystrarsaltsríkjanna því þau munu missa það frelsi sitt aftur.

 

Þessi deila er ekki til komin vegna einhverrar útþennlustefnu ESB eða NATO. Hún er komin til vegna útþennslustefnu Rússlands sem var að seilast til áhrifa í austur Evrópu þar með talið Úkraínu með bæði hótunum og mútum til fyrrum forseta landsins. Þjóðirnar næst Rússum í Evrópu hafa leitast við að komast í ESB og NATO í viðleytni sinni til að verjast útþennslustefnu Rússa því þau vita að það minnkar lýkur á innrás þeirra í lönd sín ef þau eru aðilar að þessum bandalögum.

 

Það er einnir rangt sem komið hefur fram að löglega kjörin forseti í Úkraínu hafi verið settur af í byltingu. Staðreyndin er sú að það margir af þingmönnum stjórnarflokkanna blöskraði framganga hans sem setti fullveldi landsins í hættu og hættu því að styðja stjórn hans. Stjórnin missti því þingmeirihluta sinn og því þurfti hún að fara frá. Slíkt gerist í öllum lýðræðisríkjum og er einfaldlega hluti af leikreglum lýðræðisins.

Við skulum ekki gera sömu mistökin og Chamberlain og hans skoðanabræður frá fjórða áratug síðustu aldar. Það verður að stoppa Rússa af og það strax í Úkraínu. Við skulum ekki vera svo barnaleg að halda að þeir láti staðar numið þar ef við einfaldlega látum þá komast upp með það.

 

Ef við spyrnum ekki strax  við fótunum þá erum við að setja í hættu það prinsipp að þjóðir hafi ekki rétt á að hernema aðrar þjóður að hluta til eða öllu leyti. Fyrir vopnlausa þjóð eins og okkur er þetta prinsipp mjög mikilvægt. Fullveldi okkar og sjálfstæði er í hættu ef það prinsipp brestur. Það eru því fáar þjóðir sem eiga eins mikið undir því að það prinsipp haldi eins og við. 

Það er þess vegna sem við eigum að taka fullan þátt í þessum viðskiptaþvíngunum gegn Rússum en ekki skorast undan og láta aðrar þjóðir bera kostnaðinn af þessari baráttu sem skiptir okkur svo miklu. Það að skorast unda er að fórna meiri hagsmunum fyrir minni til lengri tíma litið.

Sigurður M Grétarsson, 15.8.2015 kl. 09:05

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður þessi ESB-glýja, sem er að hrjá þig, gerir það að verkum að þú getur ekki horft á nokkurn skapaðan hlut sem ESB gerir gagnrýnum augum.  Þess í stað bullarðu bara út í eitt og þannig verða athugasemdirnar frá þér bara einn stór brandari.

Jóhann Elíasson, 15.8.2015 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband