ERU MENN LOKSINS AÐ ÁTTA SIG Á ÞESSU NÚNA?

Og þar sem Ísland er eitt af þeim ríkjum sem tilheyra "ytri lalandamærum Schengen", en við erum svo heppin að minna álag er á norðurhluta landamæranna lendum við ekki svo mikið í þeim vanda, sem Schengen samkomulagið skapar.  En það er ljóst að Schengen virkar engan veginn.  Þetta lýtur ágætlega út á blaði en framkvæmdin er með öllu misheppnuð.  Á sínum tíma, þegar Schengen var hrint í framkvæmd, var málið sett af stað meira af kappi en forsjá og fyrir vikið erum við að uppskera handónýtt kerfi, sem er eins og "gatasigti" og er gagnslaust með öllu.


mbl.is Schengen „nánast ónýtt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Jóhann.

Þeir eru nokkrir sem hafa áttað sig á þeim vanda sem ónýtt Schengen er, en fáir sem hafa þorað að hafa orð á því.  Því er gott að vita að við eigum til menn á þingi sem þora að orða hlutina eins og þeir eru, fyrir það ber að þakka.

Það verður að vera hægt að ræða þessi mál á þingi og úti í þjóðfélaginu án skætings og fordóma vegna pólitísks rétttrúnaðar.  Ef menn geta ekki rætt hlutina af skinsemi án þess að vera með upphrópanir um fordóma þá erum við illa stödd.  Ég vil þakka Karli Garðarssyni fyrir að færa þetta í tal á Alþingi og hvet menn til að fara ofan í saumana á Schengen samstarfinu og koma með úrbætur áður en það verður um seinan fyrir okkur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.11.2015 kl. 10:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er mikið til í því sem þú segir þarna Tómas.  En því miður virðist þetta "Rétttrúnaðarlið" vera búið að yfirtaka þingið og þessir örfáu sem ekki tilheyra þeim hópi mega sín frekar lítils.

Jóhann Elíasson, 18.11.2015 kl. 10:22

3 Smámynd: Ómar Gíslason

Schengen er dautt fyrirbæri í dag, það eina sem Schengen þýðir að þú getur labbað inn í annað land án þess að verða skoðaður.

Ómar Gíslason, 18.11.2015 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband