MISHEPPNAÐASTA REGLUBREYTING EVER..............

Forsvarsmenn Formúlu 1 ætluðu sér að gera tímatökuna meira spennandi fyrir áhorfendur og aðdáendur formúlunnar og breyttu því fyrirkomulaginu.  En breytingin hafði þveröfug áhrif, miðað við það sem hún átti að gera.  Ég hef ALDREI orðið vitni að því fyrr en núna að lið, sem var að keppa um ráspólinn, væri búið að parkera bílunum og hættir þegar 3 mínútur voru eftir af síðasta hluta tímatökunnar.  Það var alveg sama hvar maður tók niður í tímatökunni, hún var allan tímann alveg hundleiðinleg, það var helst í FYRSTA hlutanum, sem var einhver action, en ég dauðsá bara eftir að hafi rifið mig á fætur til að horfa á þessa hörmung.  Vonandi verður þessu breytt aftur fyrir næstu keppni, því ef þetta verður svona áfram gæti þetta alveg gengið frá formúlunni.


mbl.is „Handónýtt“ og misheppnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir þetta allt saman, Jóhann. Enda virðast menn skammast sín fyrir sýstemið og kenna um fljótaskrift. Ætli verði ekki eitthvað annað fyrirkomulag í gangi strax í næsta móti. Á ekki búmerangið ættir sínar og uppruna í  Ástralíu. Það var mátulegt að þeir skyldu fá bjúgverpilinn í hausinn þar!

agas (IP-tala skráð) 19.3.2016 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband