GUÐI SÉ LOF AÐ HAFA AÐGANG AÐ EUROVSION ANNARS STAÐAR EN Á RÚV.

Sjaldan hef ég verið jafn þakklátur fyrir að hafa aðgang að mörgum sjónvarsstöðvum eins og í kvöld.  Ég viðurkenni það alveg að ég horfi á Eurovision og hef bara lúmskt gaman af.  En í ár hvíldi skuggi yfir keppninni, sá skuggi heitir Gísli Marteinn Baldursson og fyrstu mínúturnar, gerði hann alveg útaf við keppnina með blaðrinu í sér og aulafyndninni, sem er einkennandi fyrir hann.  En þá var mér bent á lausnina KEPPNIN VAR LÍKA SÝND Á BBC FOUR OG NÁTTÚRULEGA Á HINUM NORRÆNU STÖÐVUNUM.  Ég var fljótur að skipta yfir á BBC four og þar með var kvöldinu reddað. laughing


mbl.is Ísland komst ekki áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Diddi Siggi

Seigjum tveir hann Gísli Marteinn er ömurlegur kynnir og ekki var nú vikan með Gísla Marteini gott sjónvarpsefni, sumir töldu jafnvel að betra hefði verið að endursýna Hringekjunna hans Góa sem hafði vist sirka 2% áhorf.

Diddi Siggi, 10.5.2016 kl. 22:41

2 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Ég horfði á keppnina bara í tölvuni, frá vef Eurovision. Ágætis mynd og hljómgæði og alger þögn milli laga og á þeim stöðum sem kynnar viðkomandi lands koma inn í. Mér fannst vanta svona nokkra 5 aura. Annars skil ég ekkert í andúðini á Gísla Martein, þennan prúða dreng, sem ætíð er vel til fara.

Jónas Ómar Snorrason, 11.5.2016 kl. 05:54

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Æi Jónas Ómar, vertu ekki að reyna að æsa fólk upp hérna, eins og virðist vera þitt líf og yndi. cool wink

Jóhann Elíasson, 11.5.2016 kl. 07:37

4 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Fjarri því að vera ætlun mín Jóhann, sem er ekki líf mitt og yndi.coollaughing Sagði bara GMB vera prúðan dreng og alltaf vel til fara(klæðnaði:).

Jónas Ómar Snorrason, 11.5.2016 kl. 08:02

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og heldurðu að ég sé svo "bláeygður" að ég trúi þessu alveg eins og nýju neti??? cool wink laughing

Jóhann Elíasson, 11.5.2016 kl. 09:48

6 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Vona bara að hann hafi fengið vel borgað fyrir ómakið!!

Sigurður I B Guðmundsson, 11.5.2016 kl. 09:58

7 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

HA?? KVAÐ??? VAR EVRUVISION???? HVAR????? HVENÆR?????? og ég sem er hættur að horfa á RÚV og/eða aðrar sjónvarpsstöðvar. Hef sennilega ekki misst af miklu. Er það nokkuð????????  Ég alla vega sakna þess ekki að hafa imbann í stofunni hjá mér eins og hjáguð til að tilbiðja. Bara mjög sáttur við það.  smile wink

Tómas Ibsen Halldórsson, 11.5.2016 kl. 15:13

8 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Alveg satt Jóhannwink

Jónas Ómar Snorrason, 11.5.2016 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband