ER SVO BIRKIR BJARNASON NORSKUR EFTIR ALLT SAMAN?

En þetta kom svo sem ekkert á óvart.  Norðmenn hafa reynt allt sem þeir hafa getað til að eigna sér Leif Eiríksson og landafundina miklu, þeir hafa lagt sig í líma við að "stela" Íslendingasögunum, sem dæmi get ég nefnt að þegar ég bjó þarna las ég Íslendingasögurnar til dæmis var þar hvergi minnst á Ísland þar og Bergþórshvoll og Hlíðarendi hefðu alveg eins getað verið bæir á vesturströnd Noregs.  Og nú er Birkir Bjarnason orðinn Norðmaður vegna þess að hann flutti til Noregs 11 ára gamall og spilaði fótbolta með Viking í Stavanger, SJÁ HÉR.


mbl.is Dagurinn sem aldrei gleymist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

 Það eru fleiri en Norðmenn sem skilgreina hlutina á þann hátt sem best henntar. Við höfum í gegnum tíðina sagt að þeir Norðmenn sem á sínum tíma fluttu búferlum frá Noregi til Íslands hafi hætt að vera Norðmenn og orðið Íslendingar við landmámið á Íslandi.

Ekkert óeðlilegt við það í sjálfu sér.

En svo bregður svo undarlega við að þegar Eiríkur rauði og Leifur heppni sonur hans flytja alfarnir frá Íslandi til Grænlands, þá verða þeir ekki grænlendingar við landnámið þar, samkvæmt þeirri sömu skilgreiningu, heldur halda áfram að vera Íslendingar! Auðvitað voru þeir orðnir Grænlendingar, ætlum við að vera okkur sjálfum samkvæmir.

Er ekki eitthvað svipað í gangi með skilgreininguna á þjóðerni Birkis, eitt látum við gilda í aðra áttina en allt annað í hina áttina.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.6.2016 kl. 06:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband