KANNSKI ER ÞARNA KOMINN "DROPINN SEM FYLLIR MÆLINN"???

Kannski eru Dagur B og félagar í meirihluta Reykjavíkur búnir að átta sig á því að þeir hafi farið yfir "strikið" í aðför sinni að Reykjavíkurflugvelli - eða kannski er þetta lið svo forhert og ekki í neinu sambandi við samfélagið að það bara haldi sínu striki og taki ekki tillit til þess sem nokkur segir, ef hann er ekki á sama máli og þau?


mbl.is Riftun samnings yrði umskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sýnist borgarstjórinn vera með allt niðrum sig í mörgum málum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.9.2016 kl. 10:01

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér innlitið Ásthildur.  Já hann virðist vera búinn að grafa holu  sem hann kemst ekki svo auðveldlega upp úr.

Jóhann Elíasson, 1.9.2016 kl. 10:16

3 identicon

 Held að þú ættir að setja þennan mæli þar sem sólin aldrei skín og mér kæmi ekki á óvart að þú sért með hita. Það að hafa eitthvað eftir Sigmundi Vintris og hald að það sé eitthvað að marka það er bara eins og gott viðtal sænska sjónvarpsins við hann.

Ég treysti Degi B. Eggertssyni best af öllum stjórnmálamönnum í þessu guðsvolaða landi og ég veit að hann er með allt sitt á hreinu, eins og sönnum Samfylkingarmanni sæmir.

það er mjög einföld lausn á þessu flugvallarmáli, stjórnvöld eiga að slá tvær flugur í einu höggi og leggja Reykjavíkurflugvöll niður, flytja allt innanlandsflug til Keflavíkur en þar er gamla millilanda flugstöðin til reiðu og ekkert annað en að flytja inn, þar sparast rekstur á einum velli og leggja svo léttlest til keflavíkur sem myndi koma suðurnesjamönnum til góða um leið.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 1.9.2016 kl. 12:24

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, rosalega er ég feginn að það  er ekki mikið um svona fugla eins og þig og enn síður nokkuð hlustað á svona rugludalla.  Það segir nokkuð mikið um þig og andlegt ástand þitt að Dagur B skuli vera sá stjórnmálamaður sem er í einna mestum metum hjá þér. Að þú skulir vera svo einfaldur að halda að léttlest milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar geti nokkurn tímann borið sig, er mjög sérstakt svo ekki sé nú meira sagt.  VÆRIR ÞÚ TILBÚINN AÐ SETJA UMTALSVERÐA FJÁRMUNI Í ÞAÐ VERKEFNI?

Jóhann Elíasson, 1.9.2016 kl. 13:08

5 identicon

Það myndi algjörlega borga sig að leggja lest milli Reykjavíkur og Keflavíkur, það myndi bara vera þjóðhagslega hagkvæmt.

Bara það að leggja niður Reykjavíkurflugvöll myndi spara ríkinu 700 til 1000 miljónir á ári, Reykjavíkur borg myndi fá dýrmætt land undir lóðir og það hefur verið reiknað út að þær séu að andvirði 80 til 100 miljarðar.

Sparnaðurinn hjá Reykjavíkurborg við það að þétta byggð, búa til nýtt hverfi í Vatnsmýri liggur í minni kostnaði við lagningu vega og uppbyggingu nýs samgöngukerfis eins og það sem við sjáum í Grafarvogi, Grafarholti og Úlfársdal, þessi útþensla borgarinnar er borgini gríðarlega dýr.

Svo ekki sé nú minnst á sparnað borgarbúana sjálfra, að geta jafnvel hjólað eða labbað í vinnuna í staðin fyrir að sitja í bíl, fastur í umferðateppu í Ártúnsbrekkunni.

Ég er alveg viss um það, að svona léttlestarkerfi mun borga sig þegar til lengri tíma er litið, það er verið að spá því að ferðamönnum muni bara fjölga og jafnvel verða um 2 miljónir á næsta ári, allt þetta fólk myndi að sjálfsögðu nota lestina og svo maður minnist nú ekki á allt það fólk sem býr á suðurnesjum og er jafnvel að vinna í bænum, nú eða bara snúast í borgini.

Já, ég myndi pottþétt vilja fjárfesta í þessu verkefni ef ég ætti peninga til þess, en sú ógnarstjórn Sigmundar Vitris og Bjarna Vafnings hefur séð rækilega til þess að maður getur ekki eignast mikla peninga.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 1.9.2016 kl. 13:42

6 Smámynd: Ómar Gíslason

Dagur B er versti borgarstjóri í sögu Reykjavíkur - Burt með skítalabbann Dag

Ómar Gíslason, 1.9.2016 kl. 14:22

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, á hvaða lyfjum ertu eiginlega?  Fólk sem vinnur í Reykjavík tekur ekki einu sinni strætó til Reykjavíkur, í hann kostar 1.680 krónur, því það hefur reiknað það út að ódýrara sé að keyra og svo heldur þú að það myndi notast við léttlest, sem að lágmarki myndi kosta 5.500 krónur í, það er engan veginn í lagi með þig.  Það er engin furða að þú skulir ekki eiga neina peninga ef þú hefur fjárfest mikið í svona vitleysu hingað til.  Þú hefur heldur betur dottið illa á höfuðið eða það sem verra er að sennilega hefur ljósmóðirin misst þig í gólfið við fæðingu og þú hlotið óbætanlegan höfuðskaða af. 

Jóhann Elíasson, 1.9.2016 kl. 14:43

8 identicon

Gaman að sjá Ómar Gísla hér....hann sýnir það og sannar hversu málefnalegir framsjallar geta verið.

..

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 1.9.2016 kl. 15:52

9 identicon

Ég nenni nú ekki að svara svona skætingi frá hlandhöfðinu honum Jóhanni en Ómar, ég verð að bæta því við af því að þú ert eitthvað óánægður með hann Dag minn, hvernig fannst þér þeir borgarstjórar sem voru á undan honum, þá á ég við Villa kollu sem hrökklaðist frá völdum vegna óhæfis og hneykslismála, eða borgarstjórinn sem þið völduð ykkur, Ólafur Magnússon og svo Hanna Birna en hún reyndar gerði góðan samning við Dag minn um flugvöllinn

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 1.9.2016 kl. 15:58

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, það hvernig borgarstjórar á undan Degi B (þinum cool) breytir því ekkert hvers konar bjáni núverandi borgarstjóri er og réttlætir engan veginn þá vitleysu sem hann hefur gert.  Þessar athugasemdir þínar hér á undan sýna það vel hversu bágt þú átt.

Jóhann Elíasson, 1.9.2016 kl. 16:47

11 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Skil ekki hvað þetta þarf að vera flókið fyrir ykkur Jóhann, flugvöllurinn á að fara einfallt. Allar borgarstjórnir frá 2001 hafa unnið skv. því punktur. Nema þú viljir enn og aftur lemja hausnum endalaust í grjótið, væri kannski ekki ný tíðindilaughingcool

Jónas Ómar Snorrason, 1.9.2016 kl. 20:24

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jónas Ómar, þú hefur greinilega lamið hausnum svo oft í steininn að það hefur komið gat á hann (hausinn á þér) og allt sem heitir skynsemi og vit hefur lekið út.. winkcool

Jóhann Elíasson, 1.9.2016 kl. 21:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband