FYRIR ÞAÐ FYRSTA EIGA LÍFEYRISSJÓÐIRNIR EKKERT TIL AÐ LÁNA

Það er nefnilega málið að lífeyrissjóðirnir, sem slíkir "eiga" ekki nokkurn skapaðan hlut.  Það eru sjóðsfélagarnir sem "eiga" allar þessar Eignir sem eru taldar vera í eigu lífeyrissjóðanna.  Og það nöturlega við þetta allt saman er það að reglulega eru sjóðfélagarnir að fá bréf frá stjórnum lífeyrissjóðanna, þar sem þeim er tilkynnt að lífeyrisréttindi þeirra hafi verið SKERT vegna þess að lífeyrissjóðurinn GETUR EKKI STAÐIÐ VIÐ SKULDBINDINGAR SÍNARHvernig stendur þá á því að það eru til fjármunir til útlána?


mbl.is Fráleitt að lífeyrissjóðum verði bannað lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er flott athugasemd hjá þér Jóhann. Sagt er það sé rúm þjóðarframleiðsla samtals í Lífeyrissjóðunum. Ég er sannfærður um að það eru bara tölur á blaði sem engin innisæða er fyrir. Allavega eins og þú réttilega bendir á, þá geta þeir ekki greitt lífeyri nema með skerðingum. Svo vilja þeir núna hækka iðgjöldin í 15% ég hef alltaf verið sæmilega nothæfur í stærðfræði, en þessa stærðfræði skil ég ekki. Kannski er ég bara orðinn svona vitlaus.

Steindór Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.10.2016 kl. 11:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Steindór, þú ert síður en svo vitlaus þvert á móti ert þú einn af fáum sem sérð hvaða blekkingaleikkur er í gangi.  Þetta er mjög einfalt dæmi, LÍFEYRISSJÓÐIRNIR ERU EKKERT ANNAÐ EN "LÖGLEGUR ÞJÓFNAÐUR".  þetta lífeyrissjóðakerfi er fyrir löngu komið að fótum fram og það er eingöngu tímaspursmál hvenær öll spilaborgin fellur.  Þetta er mitt mat og margra fleiri, sem hafa virkilega skoðað þetta fyrirbæri.

Jóhann Elíasson, 3.10.2016 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband