EKKI LÍTUR ÞAÐ VEL ÚT

Með "Vinstri Hjörðina" eins og hún leggur sig, þar sem hver höndin er upp á móti annarri og svo til að bæta gráu ofan á svart, þá á að bæta Viðreisn við samkrullið.  Það getur ekki nokkur mannlegur máttur haldið þessu liði saman.


mbl.is Ákvörðun liggi fyrir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Friðrik

*lítur.

Gísli Friðrik, 20.11.2016 kl. 15:39

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

"lýtur" er betri stafsetningarvilla en margar aðrar í þessu samhengi.  Því ef þessi stjórnarmyndun á að lukkast þarf að kaupa ESB aðild, eða "lúta" ESB.  Af 34 þingmönnum þessara fimmflokka eru amk 14 eindregnir ESB sinnar - hinir 20 volgir!  :)

Kolbrún Hilmars, 20.11.2016 kl. 15:53

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Getur verið að þetta ósamstæða lið sameinist um kröfu Viðreisnar um INNLIMUN Í ESB landi og þjóð til mikils skaða?

Jóhann Elíasson, 20.11.2016 kl. 16:35

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Búinn að laga þetta Gísli, þakka þér fyrir ábendinguna.

Jóhann Elíasson, 20.11.2016 kl. 16:38

5 Smámynd: Jón Bjarni

Eina krafa Viðreisnar í ESB málinu er að þjóðin fái að ákveða framhaldið... 

Jón Bjarni, 20.11.2016 kl. 17:03

6 Smámynd: Friðrik Friðriksson

Það er nú málið og alveg rökrétt Jón Bjarni

Friðrik Friðriksson, 20.11.2016 kl. 17:15

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hversu oft þurfa INNLIMUNARSINNAR, eins og Jón Bjarni og Friðrik, Á ÞEIRRI ÁMINNINGU AÐ HALDA AÐ ÞAÐ ER EKKERT TIL SEM HEITIR KÖNNUNARVIÐRÆÐUR VIÐ ESB HELDUR HAFA VIÐRÆÐUÞJÓÐIRNAR LÝST ÞVÍ YFIR AÐ ÞÆR VILJI INNLIMAST Í ESB OG ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM "SAMNINGINN" ER EKKERT ANNAÐ EN FORMSATRIÐI OG HEFUR Í RAUN EKKERT GILDI ÞVÍ HANN ER EINUNGIS RÁÐGEFANDI?

Jóhann Elíasson, 20.11.2016 kl. 17:28

8 identicon

Ákveðinn ómöguleiki gerir það að verkum að Sjálfstæðisflokkurinn kemst ekki að kjötkötlunum. Annars vegar það að formaðurinn er á kafi í Panamaskjölunum, og hann hefur þ.a.l. ekkert TRAUST. Hins vegar snýst hann eins og vindhani í ESB málinu. Um flokk síðuhöfunda þarf ekki að hafa nein orð, hann er aæljörlega ótækt stjórnmálaafl.

thin (IP-tala skráð) 20.11.2016 kl. 21:31

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eitthvað er nú lítil vitsmunavirkni í hausnum á þér "thin" hér er ekkert verið að tala um núverandi stjórnarflokka, heldur "Vinstri Hjörðina" ásamt Viðreisn, sem er að reyna að mynda stjórn núna og TRAUST er eitthvað sem "Vinstri Hjörðin" og Viðreisn VITA EKKERT hvað er (kannski heldur þetta lið að TRAUST sé eitthvað ofan á brauð?).  Ég ætla bara að benda þér á að ég er einn um að vera höfundur að þessari síðu, þar kemur enginn annar að :).

Jóhann Elíasson, 20.11.2016 kl. 21:51

10 identicon

Vitsmunir síðuhöfundar rista ekki djúpt, frekar en áður. Hann virðist ekki en vera búinn að gera sér grein fyrir því afhverju var kosið í haust. Og því síður afhverju hvorki Sjálfstæðis- né Framsókn geta komið að því borði.

thin (IP-tala skráð) 20.11.2016 kl. 23:02

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

"thin"  það er nú bara svo einfalt að þó svo að nokkrir öskurapar á Austurvelli hafi öskrað og þvingað fram kosningar nú í haust dugði það ekki til svo "Vinstri Hjörðin" gæti komið sér almennilega fyrir og því eru allar líkur á að aftur verði kosið í vor og þá eru líkur á að almenningur í þessu landi sjái hversu nálægt "hengifluginu" var farið með þessari vitleysu sem haustkosningarnar voru.

Jóhann Elíasson, 20.11.2016 kl. 23:18

12 identicon

Þessir fáu öskurapar sem lögðu leið sína á Austurvöll s.l. vor voru fleiri en þeir sem kusu Framsókn í síðustu kosningum. Burtséð frá því hvort kosið verði aftur næsta vor eða ekki þurfa fráfarandi Stjórnarflokkar að smúla dekkin, henda líkunum í burtu annars er ekki hægt að taka þá með í næstu Ríkisstjórn heldur.

thin (IP-tala skráð) 21.11.2016 kl. 00:21

13 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þér er nokkuð tamt að fara frjálslega með staðreyndir "thin",öskuraparnir á Austurvelli voru að hámarki 14.700 alla dagana og flestir þeirra mættu hvern einasta dag , sem mótmælin stóðu yfir og ekki spöruðu þeir raddböndin.  Mér er nokkuð sama hversu margir kusu Framsóknarflokkinn í síðustu kosningum en þeim atkvæðum hefur í það minnsta verið betur varið en ef "Vinstri Hjörðin" hefði verið kosin, en því miður voru nokkrir svo vitlausir en ekki nógu og margir til að þeir geti komið saman starfhæfri ríkisstjórn. wink

Jóhann Elíasson, 21.11.2016 kl. 08:21

14 identicon

Eitthvað er síðuhöfundi farið að förla. Talar um einhver mótmæli sem hann fór à í haust. Ekki furða að maðurinn bulli út í eitt. Skyldi hann hafa verið í röðinni  hjá Donkin donuts? 

Thin (IP-tala skráð) 21.11.2016 kl. 14:25

15 Smámynd: Jóhann Elíasson

"thin", hvernig flækist Donkin donuts inn í vandræði "Vinstri Hjarðarinnar"?  Þú verður að viðurkenna það að fjöldi mótmælenda þarna í apríl var alfarið eftir því hver var spurður.  En þið Vinstri öfgamennirnir viðurkennið ekki talningu nema hún sé frá "ykkar fólki".

Jóhann Elíasson, 21.11.2016 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband