OG VERÐUR LÍKLEGA LAGT TIL HINSTU HVÍLU ÞAR........

Og þar með líkur SENNILEGA þessari vitleysu þetta árið.  En sennilega má fastlega búast við framhaldi á ÞRÁHYGGJUNNI á næsta ári eða jafnvel á næsta þingi.......


mbl.is Áfengisfrumvarpið til nefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Það er væntanlega ágætur hvíldarstaður fyrir frumvarpið en best hefði verið að það færi eitthvað í varanlega geymslu svo nýir ónytjungs aular á alþingi séu ekki að taka þennan óþarfa upp trekk í trekk, tíma þingsins er betur varið í önnur viðfangsefni sem nóg er af og munn brýnni.

Hrossabrestur, 1.3.2017 kl. 12:07

2 identicon

Besta væri, að frumvarpið færi beint í tætarann og kæmi ekki framar til umræðu á Alþingi, enda á þingheimur að hafa annað þarfara að tala um og bera fram í frumvörpum heldur en þetta. Ég skil ekki þessa þráhyggju í krökkunum þarna inni á þingi. Kannske þurfi þjóðaratkvæðagreiðslu til að kveða þennan draug niður. Þá fengju krakkarnir það á hreint, að þjóðin vill þetta ekki, og snúa sér að öðrum viskulegri og þarfari málefnum.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2017 kl. 12:18

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já ég er algjörlega sammála þér þarna Guðbjörg Snót.  Þessir "krakkar" hljóta að hafa eitthvað skynsamlegra að gera við tímann en að hanga á þessari vitleysu.....

Jóhann Elíasson, 1.3.2017 kl. 15:47

4 identicon

Aldrei þessu vant er ég ósammála þér þarna Jóhann, það að ríkið sé að halda úti áfengisverslunum er algjör tímaskekkja og að sjálfsögðu á að afnema einkasölu ÁTVR á áfengi.

Mér finnst samt sem áður þetta frumvarp ganga of langt og það mun aldrei fara í gegnum þingið svona, óbreitt. Ég vil breyta frumvarpinu þannig að einokun ÁTVR á sölu áfengis verði afnumin, og að það verði leyft að selja bjór og léttvín í matvöruverslunum en sterkt vín og líka létt vín og bjór í sérverslunum, jafnframt vil ég að bannað verði áfram að auglýsa áfengi.

Þarna held ég að geti náðst ágæt sátt um málið og allir verði ánægðir.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 1.3.2017 kl. 16:24

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, ef það er það eina sem þú ert ósáttur við, að ríkið sé með einkaleyfi á sölu áfengis.  Er ekkert einfaldara en að afnema þetta einkaleyfi með lögum og bjóða bara út söluna með óbreyttu fyrirkomulagi og vandamálið er leyst og allir ættu að vera ánægðir..... smile

Jóhann Elíasson, 1.3.2017 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband