Föstudagsgrín

Jónas er harðduglegur maður og vinnur myrkranna á milli, en í frístundum sínum stundar hann íþróttir  af  kappi, blak og innanhússfótbolta, svo að eina góða helgi ákveður Magga, konan hans, að lyfta aðeins skapinu hjá honum og fara með hann út á lífið. Þau klæða sig í sitt besta púss og fara á einn af þessum stöðum þar sem boðið er upp á "listdans". Dyravörðurinn á skemmtistaðnum sér þau koma og kallar til Jónasar: "Góða kvöldið, Jónas. hvernig hefurðu það í kvöld?" Magga verður hissa á þessu og spyr Jónas hvort hann hafi komið þarna áður. "Nei, nei" segir Jónas, " hann er einn af þeim sem ég spila innanhússboltann við." Þau fá sér sæti og þjónustustúlka kemur til þeirra, sér Jónas og segir: "Gaman að sjá þig, Jónas. Gin og tónik eins og venjulega?" Augu Möggu stækka.  "Þú hlýtur að koma hingað oft!" "Nei, nei," segir Jónas. "Strákarnir kíkja stundum hingað inn eftir blakið." Þá kemur nektardansmær upp að borðinu þeirra, íklædd litlu meira en brosinu. Hún faðmar Jónas innilega að sér og segir: "Ætlarðu að fá einkadans eins og venjulega, Jónas?" Magga verður öskureið, safnar saman dótinu sínu og stormar út af skemmtistaðnum. Jónas eltir hana, sér hana fara inn í leigubíl og stekkur inn í bílinn á eftir henni. Magga horfir á hann hatursfullu augnaráði og lætur hann hafa það óþvegið. Þá hallar leigubílstjórinn sér að Jónasi og segir: "Þú hefur náð í eina erfiða í kvöld, Jónas minn."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ferming var í dómkirkjunni. Árni kirkjuvörður stóð á miðju kirkjugólfi og gætti þess, að foreldrar fermingarbarnanna fengju sæti framarlega í kirkjunni. Miðaldra kona, stór og feitlagin, ryðst inn kirkjugólfið og ætlar fram hjá Árna. Hann snaraðist í veginn fyrir hana og segir: "Ertu með barni"? Konan sneri samstundir við.

Þorleifur ríki á Háeyri var kvenhollur talinn. Hann sagði eitt sinn svo frá: Ég gekk að vetralagi með stúlku austur að Hraunsá og settist þar með henni í laut. Þá skall allt í einu á útsynningshríð, en hvorugt nefndi að hætta.

Og að lokum er það "gráa svæðið"!

Við heimför síldarstúlknanna frá Siglufirði:

Þær, sem legið hafa hér,

heim sér smeygja úr síldinni.

Litla greyið á mér er

afar-fegið hvíldinni.

-------

Klukkan sex hann kom á mót,

klukkan sjö enn beið hann,

klukkan átta kyssti hann snót,

klukkan níu reið hann.

------

Um máluga og vergjarna konu:

Þú munt vera góð til gagns

og gjörn til undirferða,

en þínar rifur þvers og lags

þér til skammar verða.

----------

Spinn, spinn, Árni minn,

bráðum kemur hann allur inn.

Árni spann, og úr honum rann

efni í nýjan kvennmann.

Sigurður I B Guðmundsson, 13.11.2020 kl. 10:56

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þær eru alveg meirihátta góðar vísurnar, sem þú setur inn Sigurður og hafðu bestu þakkir fyrir....

Jóhann Elíasson, 13.11.2020 kl. 12:51

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þakka þér fyrir það. Ég lúri á slatta af vísum sem ég læt inn hjá þér.

Sigurður I B Guðmundsson, 13.11.2020 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband