LÍTA ÞINGMENN OG RÁÐHERRAR BARA Á STJÓRNARSKRÁNA SEM EINHVERN BRANDARA??????

Nú er heldur betur komið að því að Alþingis-menn/konur fari að fara eftir stjórnarskránni okkar og virði hana í hvívetna EINS OG ÞEIR HAFA SVARIÐ AР GERA ÞEGAR SEST ER Á ÞING OG AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ LÖG SEM ALÞINGI SETUR STANDIST STJÓRNARSKRÁNA .  Nú er tækifærið til þess að fara eftir stjórnarskránni að einhverju leyti.  Málið er að ráðherrarnir eiga EKKERT erindi á Alþingi   (það er nánar fjallað um þetta síðar í greininni).  Þegar ráðherrar hafa verið skipaðir verður að kalla inn varamenn fyrir þá, en þá verður engin FÆKKUN á Alþingi.  Þá er helsta ráðið að gerð verði breyting á lögum um fjölda Alþingismanna á þessu kjörtímabili þar, sem lagt yrði til að Alþingismönnum yrði FÆKKAÐ úr 63 í 40 (Það þarf ekki fleiri þingmenn til að samþykkja þau lög og reglugerðir sem koma frá ESB og þar að auki eru mjög margir þingmenn komnir með einn eða fleiri aðstoðarmenn).  Það  verður að fara fram að minnsta kosti endurskoðun á EES samningnum og uppsögn á Schengen samkomulaginu.

Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.  Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.

En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar.

LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta.  Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt. 

FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra.  Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur.

DÓMSVALD er í höndum dómara.

Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera.

En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi.  Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.

Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ:  Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar,  Þarna er strax komin skörun.   Það er þannig að þegar kjörnir þingmenn, verða tilnefndir sem ráðherrar, þá eiga þeir að segja af sér þingmennsku og kalla inn varamenn sína.   Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp.  Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni.  Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar ekki að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar.   Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara “skilvirkari” ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing?  Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að “taka yfir” LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ.  Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga.  Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ.  Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun.  DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt.  En er það alveg sjálfstætt?  Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein “Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum” (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í  mörg ár eða jafnvel áratugi?  Ekki einvörðungu hefur framkvæmdavaldið seilst til áhrifa í löggjafarvaldinu heldur er það einnig komið með puttana í dómsvaldið (samanber Það að flestir dómarar, bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru orðnir pólitískt skipaðir) og ALLIR MUNA EFTIR „FARSANUM“ Í SAMBANDI VIÐ SKIPUN DÓMARA Í LANDSRÉTT.  En í því máli tel ég að hafi verið gerð AFDRIFARÍK MISTÖK.  Í dómi mannréttindadómstóls Evrópu kom fram að ALLIR DÓMARAR LANDSRÉTTAR VÆRU ÓLÖGLEGA SKIPAÐIR, EKKI BARA FJÓRIR, VEGNA ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI EKKI STAÐIÐ RÉTT AÐ SKIPAN ÞEIRRA. ALÞINGI ÁTTI AÐ KJÓSA UM HVERN OG EINN ÞEIRRA Í STAÐ ÞESS AÐ KJÓSA UM ALLAN HÓPINN Í EINU.  þá kom einnig fram ádeila á FORSETA LÝÐVELDISINS fyrir hans afgreiðslu á málinu.  En minnsta ádeilan var á störf Dómsmálaráðherra, sem samt var sú eina í þessu máli, sem var „látin“ sæta ábyrgð.

 Það er mín skoðun að stjórnarskráin, sem slík sé mjög gott plagg og hefur hún þolað mjög vel tímans tönn en aftur á móti hef ég meiri áhyggjur af þeim sem eru á Alþingi og eiga að sjá til þess að það sé unnið í samræmi við stjórnarskrána meðal annars á að gæta þess að lög sem eru sett séu í samræmi við stjórnarskrána á því vill nú vera misbrestur.  Það er tími til kominn að stjórnarskráin verði virt og fyrsta skrefið í þá átt er að „MOKA“ RÁÐHERRUNUM út af Alþingi enda eiga þeir alls ekki heima þar.  Sem dæmi má geta þess að það getur ekki verið eðlilegt að ráðherrarnir sitji heilu og hálfu dagana niðri á Alþingi og „bori bara í nefið á sér“.  Maður hefði haldið að það væri full vinna að stjórna landinu í það minnsta er ekki mjög trúverðugt að menn og konur geti bara gert þetta með annarri hendinni.   Það er ekki skrítið að hver ráðherra skuli hafa minnst tvo aðstoðarmenn, því ráðherrann þarf að eiða tímanum niðri á þingi, þar sem hann á EKKERT ERINDI. Svo eru þingmenn orðnir allt of margir.  Með því að henda ráðherrunum út úr Alþingishúsinu, væri stigið fyrsta skrefið í því að FÆKKA alþingismönnum, en þar væri einungis komið FYRSTA skrefið af mörgum.  Alþingismenn þurfa alls ekki að vera fleiri en 40, það sem þarf að gera er að störf Alþingis verði gerð markvissari og einfaldari.  Þegar sjónvarpað er frá þingfundi (nema „Eldhúsdagsumræðu“ hvers vegna hún hefur fengið þetta nafn er mér algjörlega hulin ráðgáta), er þingsalur yfirleitt hálftómur.  Þetta vekur þá spurningu hvort ekki væri hagstæðara að hafa þingfundi tvisvar í viku og þar af yrði annar dagurinn þar sem ráðherra tækju þátt og svöruðu fyrir embættisfærslur sínar.  Þrír dagar yrðu svo teknir í nefndastörf og önnur störf þingsins.  Áður en fólk fer að tala um að það vanti nýja stjórnarskrá er lágmark að sú stjórnarskrá sem er nú þegar til staðar sé virt.  Það hefur verið alveg með ólíkindum að horfa upp á starfsemi þingsins og oft hefur það hvarflað að manni að þingið sé með öllu stjórnlaust, ég er alveg viss um að það væri búið að reka forseta þingsins fyrir stjórnleysi og handvömm ef hann væri að vinna í einkageiranum.  Ég minntist EKKI á ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGURNAR í þessari samantekt minni, en að mínu áliti standast lögin um þingssköp Alþingis númer 55/1991 þar sem „þingsályktunartillögur“ ber fyrst á góma við stjórnarskrárbreytingar árið 2001,  EKKI stjórnarskrána.   Það  var svo ekki fyrr en árið 2020, sem skrifstofa Alþingis gaf út leiðbeiningar um HVERNIG vinna skyldi „þingsályktunartillögur“, fram að þeim tíma höfðu þær víst verið nokkuð skrautlegar margar hverjar.  Fyrst þegar var verið að verja það að bera skyldi fram mál sem „þingsályktunartillögur“, var því borið við að þar yrði aðeins um „SMÁMÁL“ að ræða sem væru það lítilvæg að ekki tæki því að fara með þau til forsetans til undirskriftar.  Fyrstu árin eftir árið 2001, eftir að þessu ákvæði var „laumað“ inn héldu menn sig við að  „smærri málin voru afgreidd með þingsályktunartillögum, en í júní 2009 urðu ákveðin tímamót í þessum efnum; ÞÁ VAR SAMÞYKKT ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA UM AÐILDARUMSÓKN ÍSLANDS AР ESB yrði útbúin og send (Þingsályktunartillaga 1/137 frá júní 2009).  Og ekki er hægt að segja að þarna sé um eitthvað SMÁMÁL að ræða, en samkvæmt mínum athugunum gerist það þarna að þingsályktunartillögum fjölgar alveg gífurlega.  En svo  við förum aftur að ESB umsóknin í júní 2009 þá er þarna ekki um neitt „SMÁMÁL“ að ræða.  Eftir óstaðfestum heimildum sem ég hef undir höndum, þá var þarna um að ræða ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar og þar var Utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson.  Þegar umsóknin kom til tals, „strandaði“ alltaf á því að Jóhanna og flokksmenn hennar höfðu þá staðföstu trú að þáverandi forseti lýðveldisins myndi ALDREI skrifa undir þessa umsókn, sem þýddi að þá yrði þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri alveg einsýnt að þar yrði umsóknin FELLD og þar með yrði umsóknin dauð.  Þá datt einhverjum snillingi í hug  (sagt er að sá snillingur hafi verið Össur Skarphéðinsson) að leggja aðildarumsóknina að  ESB,  fram sem þingsályktunartillögu því þá þyrfti ekki að hafa ÁHYGGJUR AF FORSETANUM.  Hvort gjörningurinn væri brot á lögum væri seinni tíma vandamál.  Eftir þetta fóru mörg STÆRRI mál í gegnum þingið sem þingsályktunartillögur.  Alls hafa 1.287 mál farið í gegn sem þingsályktunartillögur og er það vel merkjanlegt hvað þessum málum hefur fjölgað mikið síðan 2009og „þröskuldurinn“ á stærð málanna hefur hækkað mikið.  Ég fór lauslega yfir þennan lista af þingsályktunartillögum frá upphafi og af þessum 1.287þingsályktunartillögum eru 246, sem varða BREYTINGAR á „viðaukum“ EES samningsins og ég sem hélt að ekki væri hægt að breyta gerðum samningi jafnvel þó aðeins sé um að ræða viðauka.  Ég er ansi hræddur um að margt athugavert kæmi í ljós ef allar þessar þingsályktunartillögur yrðu skoðaðar.

 

Nú er sem dæmi eftir nokkra daga að hefjast fundur, þar sem verður ákveðið HVORT ÍSLAND OG 193 ÖNNUR RÍKI AFSALI SÉR ÖLLU VALDI  TIL WHO (ALÞJÓÐA HEILBRIGÐISMÁLASTOFNUNARINNAR) OG ÞÁ FARI WHO MEÐ ÖLL VÖLD Í HEILBRIGÐISMÁLUM  ÞJÓÐARINNAR.   Þarna er óumdeilt  að um sé að ræða FRAMSAL Á VALDI TIL ERLENDRA AÐILA, SEM ER MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI.  Ég veit ekki til þess að þetta mál hafi verið rætt á Alþingi og eina umræðan sem ég hef heyrt um þetta mál e rá útvarpi Sögu og þingmenn konur hafa ekki fengist í viðtal þar og bera þeir því við að þeir hafi ekki haft tíma til að setja sig inn í málið.  Ætla þeir (þingmennirnir) að setja sig inn í málið EFTIR að búið er að skrifa undir og hvað á þá að gera??????

 

Nú reynir heldur betur á ALLA þá sem sitja á Alþingi Íslendinga.  Nú á að  leggja fram á Alþingi LANDRÁÐAFRUMVARP, sem nefnt er BÓKUN 35,  það er ekki minnsti vafi að þetta felur í sér VALDAFRAMSAL.  ÉG VEIT  EKKI BETUR  EN AÐ ALLIR SEM SETJAST Á ÞING (þar með taldir ráðherrar, sem ég tel að eigi alls ekki að sitja á þingi þar sem þeir tilheyra FRAMKVÆMDAVALDINU en ég fjalla aðeins um þetta annars staðar í pistlinum) SVERJI EIÐ AÐ STJÓRNARSKRÁNNI OG STJÓRNARSKRÁIN HEIMILAR EKKI VALDFRAMSAL.  Ég reikna nú ekki með að  þingmenn eigi að  rifja þennan eið upp við upphaf hvers þings, EN KANNSKI VÆRI EKKI VANÞÖRF Á ÞVÍ..............


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er heldur betur farið að lengjast í bloggunum þínum! Ég er sammála öllu sem þú fjallar þarna um og að það er eitthvað mikið að þarna á Alþingi sem við eigum svo að bera virðingu fyrir.

Sigurður I B Guðmundsson, 21.2.2024 kl. 16:03

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Frábær pistill Jóhann þó langur sé.

Sammála þér í öllu. En það er nú bara svo, að það er að verða formasatriði

að innlima okkur í ESB. Það er búið að koma svo miklu í gengn vegna

handónýts liðs á alþingi sem ekkert gerir nema hugsa um rassgatið á sjálfum sér.

Þeir sem á alþingi sitja, halda að þingmannaeiðurinn sé notaður til að

samþykkja launin sem þeir eiga að fá því ekki er hægt að sjá að neinn

af þessum þingmönnum standi við þann eið. Svo má ekki gleyma því Jóhann, að

WHO mun taka hér yfir, því þeir vissu alveg hvaða manneskju átti að velja til þess.

Hún er móðir, forsætisráðherra, styður fóstureyðingar fram að fæðingu, fagnar

stríðinu í Úkraníu og telur að við eigum að taka meira segja þátt í því, finnst alveg sjálfsagt

að henda 40 milljónir á ári í samtök sem kenna sig við hinsegin fólks fyrir utan alla aðra styrki

þegar kemur "bakslag", þetta er engin önnur en..

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem hefur verið útnefnd sendiherra velsældarverkefnis Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (e. Champion for the WHO Well-being Economy Initiative) til næstu tveggja ára.

Markmið verkefnisins er að styðja við verkefni sem bæta velferð samfélaga og tryggja heilbrigðari, sanngjarnari og farsælli framtíð fyrir komandi kynslóðir. Hlutverk sendiherra verkefnisins er að vekja athygli á velsældaráherslum á alþjóðavísu og kynna fyrir ríkjum heims og alþjóðastofnunum þau tækifæri sem felast í velsældarhagkerfum.

 

Hún hefur engvan tíma til að hafa áhyggjur af landi og þjóð enda nóg í

öðru að snúast. Gefa út bók um glæpasögur í Reykjavík, sennilega byggðar á sögum

úr alþingi enda margir glæpamenn þar og þjóðníðingar, ferðast til útlanda á

einskis nýtar ráðstefnur sem engvu skila nema tjóni fyrir okkur hér heima.

Mæta í viðtöl og brosa og láta alla halda að hún hafi miklar áhyggjur af öllu.

Snilldarplott hjá WHO. Þeir þekkja sögu VG mjög vel því formenn þessa flokks

ljúga og svíkja þjóð sína 24 tímum eftir kosningar eins og fyrri formaður

gerði Steingrímur J Sigfússon. Sem var svo heiðraður með því að gera hann

að forseta alþingis sennilega fyrir svikin. Bara það sýnir hvurslags ruslahaugur er á hinu lágvirta

alþingi íslendinga og ekki treystandi neinu sem þaðan kemur.

Svo varðandi bókun 35, þá fer fyrir henni einn vafasamasti maður á alþingi.

Hann telur sig vera, Vafnigalaust einn mesti ICE HOT 1 íslands. Selur til vina

og kunningja banka á silfurfati og var með sitt “Ískalda” mat eftir hrunið

að koma okkur í hlekki Icesafes. Nú er hann tilbúinn aftur. Tókst ekki þá en

kannski tekst það núna.

Sorry fyrir langlokuna, en það var bara að svo mörgu að taka.

Sigurður Kristján Hjaltested, 21.2.2024 kl. 17:01

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég lofa því að ég reyni að hemja mig í framtíðinni Sigurður.  En það er sko allt í lagi að gefa manni smá viðvörun svona öðru hvoru.....

Jóhann Elíasson, 21.2.2024 kl. 17:26

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður Kristján, það var bara mátulegt á mig að þú skyldir kom með langa athugsemd wink.  En m álið er bara að allt sem þú skrifar þarna er ara hárrétt og sannleikanum samkvæmt þvert á það sem tíðkast á Alþingi......

Jóhann Elíasson, 21.2.2024 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband