Þjálfaramál Íslenska landsliðsins

Ég las í Fréttablaðinu í morgun að Elísabet Jökulsdóttir vill að Ásthildur Helgadóttir þjálfi karlalið Íslands í knattspyrnu.  Hugmyndin sem slík er góðra gjalda verð, því eins og allir vita þá er Ásthildur Helgadóttir ein okkar allra bestu knattspyrnukona, ef ekki sú besta en þjálfunarreynslu hefur hún enga (eftir því sem ég best veit) og ekki hugnast mér forsendurnar fyrir uppástungu Elísabetar Jökulsdóttur en hún lætur hafa eftir sér í Fréttablaðinu "að það þurfi að breyta til og taka þetta ekki svona ferlega alvarlega".  Hvað hún á við veit ég ekki alveg en að mínum dómi eigum við að taka landsliðið okkar í fótbolta alvarlega.  Það er að mínum dómi komið að leiðarlokum hjá Eyjólfi Sverrissyni eftir mjög svo "slappan" feril og fljótt álitið sé ég ekki neinn karlkyns þjálfara sem gæti tekið við en sá þjálfari sem hefur sýnt framúrskarandi árangur er Helena Ólafsdóttir.  Það þarf að brjóta þetta upp, eins og Elísabet Jökuldóttir benti á, væri það ekki gott fyrir Íslenska knattspyrnu ef það væri kona sem þjálfaði karlalandsliðið og ekki bara kona heldur kona sem væri mjög fær á sínu sviði.  Ekki þarf að telja upp kosti Helenar hér en að mínum dómi væri mikill fengur að henni fyrir landsliðið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég er ekki alveg sammála því sem þú segir um Eyjólf Jóhann. Utan því að árangurinn er alveg herfilegur þessa dagana, en ég held að annar þjálfari geri ekkert með þetta lið úr þessu í keppninni sem þeir eru í, mér finnst að það eigi að reyna á þetta til enda.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.6.2007 kl. 16:36

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég get alls ekki séð að Eyjólfi hafi tekist að mótívera liðið hreinlega að stappa stálinu í þá og þegar svoleiðis er þá verður að gera eitthvað róttækt og það er nokkuð róttækt að láta Helenu hafa liðið til að spreyta sig á.  Nú ef við komum ekki til með að sjá góða knattspyrnu inn á vellinum verður þó í það minnsta falleg kona á hliðarlínunni.

Jóhann Elíasson, 9.6.2007 kl. 18:28

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já, það er laukrétt og kannski næg ástæða... sannarlega

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 10.6.2007 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband