Hvenær verður mælirinn fullur???

Það er ekki nóg með að Norðmenn hafi verið að "dunda" sér við það, óáreittir síðustu árin og áratugina, að "stela" af okkur Íslendingasögunum og merkum einstaklingum, heldur er það nýjasta að reyna að stela fallegu lagi, sem hefur fyrir löngu komið sér fyrir í hjarta okkar Íslendinga og komið sér þar vel fyrir.  Að sjálfsögðu er ég að tala um lagið SÖKNUÐ eftir Jóhann Helgason, en Norski "tónsmiðurinn" Rolv Lövland, hefur eignað sér lagið en er svo óforskammaður að hann gerði á því mjög lítilvægar breytingar, en líklega duga þessar "breytingar" honum ekki fyrir dómstólum.  Eins og flestum er kunnugt þá sló þessi breyting í gegn í flutningi Josh Groban og heitir í hans flutningi "You Raise Me Up".Nú hefur Jóhann Helgason stefnt Rolv Lövland (meira en Íslensk stjórnvöld hafa gert í meintri þjófnaðartilraun Norðmanna) og óska ég Jóhanni Helgasyni velfarnaðar í þessu máli.

Í framhaldi af þessu vill fólk kannski vita ástæðuna fyrir því hvers vegna Norðmenn eru svona nískir.  Jú forfaðir Norðmanna var Skoti og formóðirin Gyðingur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég hef alltaf sagt það, ekki vottur af Norsku blóði í okkur. Gyðingar norðursins hvað ???

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 3.7.2007 kl. 12:30

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Rannsóknir" hafa sýnt fram á að meirihluti Íslendinga sé kominn af Írum og Keltum,nokkrir eru svo óheppnir að hafa einhverja Norska drullublöndu í sér.

Jóhann Elíasson, 3.7.2007 kl. 12:37

3 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég er klárlega komin af Írum

Brynja Hjaltadóttir, 4.7.2007 kl. 00:15

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eitt sinn lentu 4 Íslendingar á sjúkrahúsi í Dundee í Skotlandi, 2 þessara manna höfðu verið að drekka og voru nokkuð ölvaðir við komuna á sjúkrahúsið.  Þegar menn voru farnir að hressast þá var einn þeirra (sá eini þeirra sem eitthvað gat tjáð sig á ensku) að tala við einn lækninn á deildinni og barst meðal annars í tal að sennilega væru Íslendingar komnir af Írum og Norðmönnum, þá sagi hann og benti á þann sem var í næsta rúmi: Já, þessu trúi ég mjög vel, því það var mjög Írskt í honum blóðið þessum við komuna hingað.

Jóhann Elíasson, 4.7.2007 kl. 06:22

5 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Jóhann!Þegar ég bjó í Svíþjóð tók ég nokkrum sinnum Oslóarferjuna frá Köben.Eitt sinn tók ég"Sightseeing trip"um Osló með í pakkanum.Leiðsögukonan talaði mikið um Víkinga en nefndi bara norska,danska og sænska.Ég fór að rífa kjaft og spurði um þá íslensku þá vafðist henni tunga um tönn og vildi meina að þeir hefðu verið norskir með búsetu á Íslandi!!!!!!!.Ja Húsvíkingar geta jú búið í Reykjavík

Ólafur Ragnarsson, 4.7.2007 kl. 13:50

6 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Ég hélt að við Íslendingar værum ættaðir einhverstaða frá? Er ekki fyrir löngu búið að finna genatíska sönnun fyrir því að 70% karlkyns landnámsmanna voru frá Skandinavíuskaganum en ca. 70% kvennanna frá Bresku eyjunum?

Við erum þá a.m.k. að stórum hluta með sömu gen og Norðmenn = forfaðir okkar er þá Skoti og formóðirin Gyðingur.

Annars var einhver alþýðuforingi hér á árum áður sem skrifaði margar lærðar greinar um Gyðinglegan uppruna Íslendinga. Hann notaði m.a. skjaldamerkið til að styðja þessa skoðun sína og hélt því fram að þetta væri gen Daníta (einn af upprunalegu 12 ættbálkum Gyðinga) sem aldrei gætu lifað í sátt við nokkurn mann og hrektust því frá einni þúfunni til annarrar.

Þetta fannst mér alltaf skemmtileg kenning.

Annars erum við náttúrulega öll komin undan Ynglingaættinni sem réð ríkjum í Upplöndum á suð-austan verðum Skandinavíuskaganum á árunum kringum 500 e.k. , sjá HÉR:

Kveðja úr löndum Ynglinga!

Ásgeir Rúnar Helgason, 4.7.2007 kl. 22:27

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eitthvað hefur þessum genatísku sönnunum þínum skolað til Ásgeir.  Verðum við ekki að fá Kára Stefánsson í málið?

Jóhann Elíasson, 4.7.2007 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband