Föstudagsgrín

Uppfærsla frá Kærasta 7.0 til Eiginkona 1.0  Kæra tæknilega aðstoð:  Um daginn uppfærði ég úr Kærustu 7.0 í Eiginkonu 1.0. Eftir að ég hafði sett upp Eiginkonu 1.0 í tölvunni, setti forritið sig sjálft inn í öll önnur forrit í tölvunni. Það ræsir sig sjálfkrafa þegar ég kveiki á tölvunni, vaktar allar mínar athafnir og kemur sífellt með tillögur að krefjandi aukaforritum eins og t.d. Barn 2.0, þó allir viti að ÞAÐ forrit er mjög illa þróað.  Eiginkonuforritið tekur mikinn tíma og notar mikið minni. Það er ómögulegt að fá það til að víkja meðan ég nota mín uppáhaldsforrit. Gömul forrit eins og Pókerkvöld 10.3, Bjórkvöld 2.5 og Sunnudagafótbolti 5.0 virka ekki lengur. Það stóð ekkert um þetta í leiðbeiningunum fyrir forritið. Ég er að íhuga að fara bara aftur í Kærustu 7.0, en það virðist ekki einu sinni vera hægt að fjarlægja Eiginkonu 1.0.  Getið þið hjálpað mér??  

Kveðja, Ráðvilltur og Ráðþrota  

 Kæri RR Vandamál þitt er þekkt og mjög algengt, margir kvarta undan þessu, en þetta byggist að mestu leyti á misskilningi. Margir menn uppfæra úr Kærustu 7.0 í Eiginkonu 1.0 af því að þeir halda að Eiginkona 1.0 sé þjónustu- og afþreyingarforrit. Þar liggur misskilningurinn hjá flestum. Eiginkona 1.0 er stýriforrit, hannað til að stjórna öllu. Það er ógerlegt að fjarlægja Eiginkonu 1.0 og fara aftur í Kærustu 7.0 þegar þú hefur sett það upp einu sinni. Sumir hafa reynt að setja upp Kærustu 8.0 eða  Eiginkonu 2.0, en hafa þá setið uppi með fleiri vandamál en með Eiginkona 1.0. Við mælum með því að þú haldir Eiginkonu 1.0 og reynir að gera það besta úr því sem komið er. Þú getur t.d. lesið allan kafla 6 í leiðbeiningunum, "Algengar villur". Forritið mun keyra snurðulaust, svo framarlega sem þú tekur ábyrgð á öllum villum, óháð ástæðu og uppruna þeirra. Það besta sem þú getur gert er að fara strax í Start/Run og skrifa FYRIRGEFÐU til að stýrikerfið villuhreinsist og keyri eðlilega. Eiginkona 1.0 er flott forrit, en krefst mikils viðhalds. Þú ættir að íhuga að kaupa meiri hugbúnað til að bæta afkastagetuna. Við mælum með Blómum 2.1, Súkkulaði 5.0 eða í neyðartilfelli Pels 2000. En þú mátt ekki undir neinum kringumstæðum setja upp Vinkona_í_mínípilsi 3.3. Eiginkona 1.0 styður ekki þann hugbúnað og það myndi sennilega gera út af við tölvuna.   Með vinsemd og virðingu, Tæknileg Aðstoð   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Góóóður....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 9.11.2007 kl. 12:44

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég lendi vara í uppvaski og marglitum fatabúnkum við að hlægja að þessum.

Hallgrímur Guðmundsson, 10.11.2007 kl. 00:04

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehehehe

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.11.2007 kl. 15:41

4 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, þetta er stórskemmtileg lesnig. Það þarf nokkuð gott hugmyndaflug til að skrifa svona. Þannig skrif gera bloggið skemmtilegt.

takk fyrir þetta

kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 11.11.2007 kl. 17:29

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er nú ekki höfundurinn af  þessu en mér fannst þetta skemmtilegt og vonandi hafa fleiri gaman af þessu.

Jóhann Elíasson, 11.11.2007 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband