Föstudagsgrín

Virðuleg frú gekk að prestinum og sagði honum frá vandamáli sínu: “Ég á í mestu erfiðleikum með fuglana mína, ég á tvo talandi kvenpáfagauka, en þeir segja bara eina setningu” – “Nú hvað segja þeir?” Spurði presturinn.“Hæ við erum vændiskonur villtu bregða á leik!” – “Þetta er hræðilegt!” hrópaði presturinn “en ég held að ég hafi lausn á þessu vandamáli þínu.  Komdu með páfagaukana heim til mín og ég skal kynna þá fyrir gaukunum mínum, sem ég hef kennt að biðja bænir og lesa biblíuna”.Frúin varð ógurlega ánægð og strax næsta dag mætir hún með páfagaukana til prestsins, sem skellir þeim beint í búrið til karlpáfagaukanna, sem héldu á talnaböndum og báðu til Guðs.  Kvenpáfagaukarnir heilsuðu hinum með virktum og sögðu: “Hæ við erum vændiskonur, viltu bregða á leik?”Annar karlpáfagaukurinn leit á hinn og sagði æstur: “Leggðu frá þér talnabandið, bænum okkar hefur verið svarað”.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Einarsson

HAHAHA Góður.

Vona að trúfélagar mínir í kaþólsku kirkjunni geti hlegið að þessu. Mér finnst þeir vera einum of sárir út í Gnarr kallgreyið út af góðum húmor.

Góða helgi á þig

Einar Örn Einarsson, 13.6.2008 kl. 16:39

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, bara nokkuð góður hjá þér núna, kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 13.6.2008 kl. 23:25

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Góður þessi og líklega nokkuð raunsannur.

Haraldur Bjarnason, 14.6.2008 kl. 12:31

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll félagi!Góður,tek undir Eyjakveðju helga Þórs

Ólafur Ragnarsson, 14.6.2008 kl. 16:52

5 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Ps Helgi er nú skrifað með stórum staf.Og annað á þessi Helgi ekki skilið frá mér.

Kært kvaddir

Ólafur Ragnarsson, 14.6.2008 kl. 17:05

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

"Föstudagsgrínið" Kom mér í gottskap á laugardegi.

Sigurður Þórðarson, 14.6.2008 kl. 23:47

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 15.6.2008 kl. 13:49

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha frábær brandari  Og alveg í fullu gildi þó það sé komin sunnudagur Jóhann minn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2008 kl. 14:01

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 Sammála EEE að Gnarr er alger snillingur í gríni. Sammála Ásthildi elskulegri og tel að þetta sé hvers dags brandari. Ég lærði nú í bernsku að maður á aldrei að  biðja guð um neitt sjálfum sér til handa, þannig að ég skil það þannig að þessir biðjandi páfagaukar hafi verið að biðja guð að nota sig til góðra verka hahahaha  góður, kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.6.2008 kl. 19:57

10 Smámynd: Haraldur Haraldsson

 flottur/kveðja /Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 17.6.2008 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband