Hverju á þetta yfirklór að bjarga????

Í þessum tillögum var ekkert að sjá sem gerir annað en að lengja í hengingarólinni hjá fyrirtækjunum í landinu og enn einu sinni vil ég minna á það að ekki hefur farið mikið fyrir því að það eigi  að koma heimilunum í landinu til bjargar,það er verið að tala um BJÖRGUN ekki slátrun eins og tillögurnar sem voru kynntar um daginn bera með sér en í þeim fólst ekkert nema að lengja í hengingarólinni eins og þessari ríkisstjórn, sem er svo gjörsamlega dottin úr sambandi við raunveruleikann, er svo tamt að gera þessa dagana.  Ef svona lagað er það eina sem ríkisstjórnin hefur fram að færa þessa dagana þá er eins gott að hún fari frá hið fyrsta.
mbl.is Bjarga á fyrirtækjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Liberal

Þannig að þú vilt a) kjósa og b) láta fella niður skuldir heimila og fyrirtækja?  Ekki veit ég hvar þú lærðir það sem þú segist hafa lært, en ef ég ætti að giska myndi ég skjóta á bréfaskóla í gegnum Corn Flakes pakkana.

Kjósa, og hvað svo?  Fá kommúnistana við völd sem boða (sbr. sunnudagsmoggann) skinnaiðnað, ullarvinnslu, skipasmíðar, áburðarframleiðslu og kornrækt sem framtíð Íslands?  Nei takk.  

Bjarga?  Þannig að þeir aðilar sem tóku lán á sínum tíma til að fjármagna eigin neyslu, og höfðu svo ekki efni á láninu þegar upp var staðið, eiga að fá frímiða út í lífið?  Þú mátt giska þrisvar sinnum hver þarf að borga fyrir þá skuldafyrirgefningu. 

Liberal, 2.12.2008 kl. 13:47

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hver var að tala um kosningar Liberal annar en þú?  Aðrar athugasemdir þínar eru svo hjákátlegar að þær eru ekki svara verðar.

Jóhann Elíasson, 2.12.2008 kl. 14:17

3 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Blessaður Jói
Hef ekki skoðað þessar tillögur ofan í kjölinn en ég hef miklar áhyggjur af því að mörgum fyrirtækjum hérna sé einfaldlega ekki viðbjargandi eftir engisprettufaraldur útrásarinnar. Það er staðreynd að leituð voru upp fyrirtæki í góðum rekstri þau keypt eigið fjármagn hirt og fyrirtækið yfirveðsett til kaupa á næsta fyrirtæki þegar búið er að leika þetta nokkrum sinnum er eins komið fyrir fyrirtækinu og síldinni bæði sníkjudýrin leiða til bana hýsilsins. Því miður. Þetta er ég hræddur um að sé þegar orðin staðreynd hér i mörgum tilfellum og að allt að 75% sjúklingana sé ekki viðbjargandi og fjármunum sé betur varið í að byggja nýtt.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.12.2008 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband