Ekki TVÖFALDUR í roðinu heldur MARGFALDUR.......

Það er alveg greinilegt, að maðurinn veit ekkert í hvaða fót hann á að stíga.  Hver einasti maður, sem er með lágmarksþekkingu og meðalgreind, veit það að "stofnstærðarmælingar" HAFRÓ eru gjörsamlega ómarktækar.  Það myndu fást alveg jafn áreiðanlegar upplýsingar um stofnstærð þorsksvið Íslandsstrendur, með því að fara á leikskólann Hjalla í Hafnarfirði og spyrja Olgeir Karl Valdimarsson (hann er fjögurra ára en kannski geri ég honum rangt til að bera hann saman við HAFRÓ-kálfana því hann hefur ekkert gert af sér sem réttlætir þetta).  Allir með meira en hálf fimm í kollinum vita að það er miklu meiri fiskur í hafinu en "spekingarnir" hjá HAFRÓ segja og hafa "reiknað" út.  Hvernig skildi eiginlega standa á því að Íslensk fiskiskip fara ekki lengur á þær "togslóðir" sem HAFRÓ er með togararallið sitt á og byggir stofnstærðarmælingar sínar á?  Kannski sjávarútvegsráðherra sé nú aðeins að rumska en hann hafði ekki kjark til að hafa ályt mannréttindanefndar sameinuðu þjóðanna til hliðsjónar, þegar hann tók ákvörðun um  aukningu þorskveiðiheimilda.
mbl.is Hægt á uppbyggingu þorskstofnsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér þarna.  Nema ég heyrði í haust að þeir myndu "finna" 30.000 tonn af kreppufiski með vorinu, svona til að halda sjálfstæðismönnum á floti.  Þannig að það er ekki vakning í gangi heldur eitthvað allt annað hjá þessum sjávarútvegsráðherra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.1.2009 kl. 13:50

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Jóhann og Ásthildur. Við öll og fjölmargir aðrir vita upp á hár að þessar stofnmælingar eru aldrei meira en vísbendingar. Og framkvæmd þeirra eins og þú bendir á er auðvitað ekki annað en brosleg. Öll þessi umræða okkar andófsfólksins er orðin tilgangslaus að minni hyggju. Þjóðin hefur sætt sig við ofbeldi stjórnvalda og þeirra tækja sem þau nýta sér til að blekkja þjóðina og jafnframt skýla spillingunni.

Við eru núna stödd í þungu prófi- einskonar lokaprófi. Takist okkur ekki að hrista af okkur slenið við þær aðstæður sem nú eru og taka saman höndum;- takist okkur ekki að mynda þá samstöðu sem til þarf að reka frá okkur pólitík spillingar og einkahagsmuna skulum við bara breiða upp fyrir haus og bíða örlaganna hljóð og hæglát.

Árni Gunnarsson, 17.1.2009 kl. 14:12

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, ekki þori ég að fullyrða um það að þessar stofnstærðarmælingar séu tóm vitleysa, en sjómenn eru almennt á þeirri skoðun að miklu meira sé af fiski í sjónum en fiskifræðingar halda fram, og þeir hljóta að hafa að einhverju leiti rétt fyrir sér.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 17.1.2009 kl. 16:46

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Algjörlega sammála þessu Jóhann!!!!Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 17.1.2009 kl. 16:59

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Jóhann , ég velti því fyrir mér hvort ekki hefði verið óhætt að auka kvótann um annað eins og bjóða þá viðbót upp , einnig held ég að rétt hefði verið að loka fyrir snurvoðarveiðar í fjörum landsins gegn auknum aflaheimildum . kv ,

Georg Eiður Arnarson, 17.1.2009 kl. 17:42

6 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll"gamle ven"sammála færslu þinni Kært kvaddur með kveðjur til frænda

Ólafur Ragnarsson, 17.1.2009 kl. 20:25

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er gott að auka aflaheimildir, en aukinn kvóti?  Ég hef heyrt að eitthvað af þessu lendi í þrtabúum sem erlendir bankar gera kröfu í.  Það finnst mér vera sóun.

Sigurður Þórðarson, 17.1.2009 kl. 20:40

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég vil byrja á því að þakka öllum fyrir innlitið og athugasemdirnar en þó vil ég segja við Erling Þorsteinsson að síendurtekin rannsókn "VIÐ SÖMU AÐSTÆÐUR" eykur vissulega gildi hennar um það eru allir fræðimenn sammála.  Ég er alls ekki að gera lítið úr þekkingu þinni en í mínum huga er mikill munur á gæðamálum í sjávarútvegi og veiðimálum yfirhöfuð.  Mig langar til að útskýra mál mitt aðeins: Þeir (HAFRÓ) byggja „MÆLINGAR" sínar,alfarið á svokölluðu togararalli, sem þú hefur vafalaust heyrt af og þekkir, þetta togararall hófst fyrir u.þ.b 25-26 árum og gengur út á að það er „togað" á sömu togslóð í vissan tíma, á sama tíma, með samskonar veiðarfærum, notast er við sömu skip allan tímann (einhverjir togarar sem hófu togararallið hafa fallið úr leik en það hefur ekkert komið í þeirra stað). Það er ekkert tekið tillit til þróunar í veiðarfæragerð, það er ekki tekið tillit til þess að MIKLAR breytingar hafa orðið á hitastigi og lífríki sjávar, t.d sagði kunningi minn mér frá því að þeir væru farnir að fá karfa mikið norðar en áður, karfinn heldur til í mun heitari sjó en þorskurinn þegar ég var á sjó var karfi yfirleitt ekki veiddur norðar en í sunnanverðum Víkurál. Ekki get ég fallist á að þetta séu MJÖG VÍSINDALEGAR aðferðir. T.d er ég í mínu námi búinn að taka áfanga í "akademískri aðferðafræði" og ég er ansi smeykur um að ef ég hefði beitt samskonar rannsóknaraðferðum, þá hefði ég ekki náð að útskrifast úr þessum áfanga.

Jóhann Elíasson, 17.1.2009 kl. 21:11

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Áhugavert innlegg hjá þér Jóhann

Sigurður Þórðarson, 17.1.2009 kl. 23:03

10 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Heill og sæll Jói ég gerði smávægilega úttekt á þessu blessaða togararalli Hafró, ég nennti ekki að leita að þessu á minni síðu en ég setti þetta einnig inn á aðrar síður. Sjáum hvernig þetta lítur út, hér er hlekkur á helgidóminn  svo fór ég aðeins að skoða hvað stofninn gæti verið stór og hvernig í helvítinu þeir gátu fengið það út að einungis 650.000 tonn væru til af þorski, skoðum það mál hér.

Þeirra fræði er eingöngu takið eftir eingöngu byggð á stærðfræði þar sem ekkert tillit er tekið til breytinga í hafinu svo sem hita, strauma, tunglstöðu og veðurs þegar vísindaelítan stormar á stað í togararallið. Þá er það hreint ekki svo flókið að setjast niður með upplýsingar frá þeim sjálfum og reikna með bæði augun opin.

Hallgrímur Guðmundsson, 17.1.2009 kl. 23:17

11 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Það hlýtur að vera hægt að ná hafró út úr algebrunni og fara að leggja meiri stund á sjávarlíffræði.

Kveðja til þín Jóhann.

Einar Örn Einarsson, 18.1.2009 kl. 02:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband