Fékk maðurinn HAGFRÆÐIGRÁÐUNA í Cheerios-pakka????????????

Flestir, sem ég hef talað við og þekkja til þessara mála, vilja meina það að einmitt GJALDEYRISHÖFTIN veiki gengi Íslensku krónunnar en Seðlabankastjóri telur sig ekki vera búinn að vinna næg hryðjuverk á Íslensku  efnahagslífi.  Hér er hann í umboði Norskra stjórnvalda og kannski telja þau að hann sé ekki orðinn nægilega fastur í sessi til að vinna  enn meiri hryðjuverk á Íslenskum efnahag.  Það er jú alþekkt að það sé komið fyrir flugumanni innan raða þess sem á að taka yfir.
mbl.is Slakað á gjaldeyrishöftum í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: besservissinn

ætlar þú nú virkilega að fara að apa eftir heimskunni hans Hannes Hólmstein núna? Horfðu bara á gengi krónunnar erlendis og þá veistu hvað raunverulegt gengi er. Það gengi sem er skráð hérlendis er einfaldlega plat og allt of hátt skráð, en er um leið nauðsynlegt svo við Íslendingar getum keypt keypt nauðsynjavörur á semi-eðlilegu verði. Það liggur alveg ljóst fyrir að þessi gjaldeyrishöft eru gerð til að takmarka flæði þessara krónubréfa, sem eru svo gígantískar upphæðir í samanburði við þetta núverandi hefta gjaldeyrisflæði. Ef þau væru ekki er ekkert sem stoppar gengisvísitöluna að hoppa uppí 500. Menn gera þó ráð fyrir því að eftir að þessi krónubréf eru farin þá geti gengið lagað sig fljótt aftur og þá er þetta vandamál úr sögunni og gjaldeyrishöftin óþörf. Fyrst þyrfti þó að taka á sig þennan skell á gengið, en nú virðist sem samningar við þessa krónubréfaeigendur gætu minnkað þennan skell allverulega.

Þú minnir mig nú bara á Bubba þegar hann fór að kenna nýjum stjórnvöldum/seðlabankastjóranum um að plat gengið okkar hefur verið að lækka að undanförnu, þau væru greinilega ófær um að stjórna hérna. Það er náttúrulega glórulaust að seðlabankinn sé endalaust að nota gjaldeyrisvaraforðann til að hafa afskipti á gjaldeyrismarkaði til að viðhalda genginu, eins og tíðkaðist með Davíð var í seðlabankanum. Það er alveg ljóst að þetta platgengi þarf að lækka til að hægt sé að raunverulega fleyta krónunni, og nýji seðlabankastjórinn hefur þó áttað sig á því. Þvílíku hryðjuverkin...

besservissinn, 26.4.2009 kl. 11:35

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Besservisi eða hvað þú nú heitir, hvað hefur þú eiginlega verið að drekka?  Það er svo mikið bull sem þú þvælir að það hálfa væri nóg.  Ef þú ferð inn á heimasíðu Evrópska seðlabankans sérðu að gengið er mjög svipað og hér þó svo að þeir séu ekki með opinbera skráningu á Íslensku krónunni, er mjög auðvelt að reikna út skráninguna og bera saman við skráninguna hér á landi.  Gengið er EKKI vitlaust skráð, það er bara einhver saga sem þú hefur hirt upp hjá einhverjum álíka rugluðum.  Það er peningastefnan sem er að klikka og stjórnun efnahagsmála er í molum.  Gjaldeyrishöftin koma fyrst og fremst í veg fyrir EÐLILEG utanríkisviðskipti og takmarka EKKERT flæði krónubréfa.  Áður en þú ferð að bulla einhverja þvælu og bera út sögusagnir, skaltu kynna þér málin.

Jóhann Elíasson, 26.4.2009 kl. 12:14

3 identicon

Geturðu bent mér á upplýsingar eða gögn sem styðja þetta, þ.e.a.s. að gjaldeyrishöftin séu að veikja krónuna.  Mér finnst þetta áhugaverður punktur en finn ekki í fljótu bragði neitt sem ég get litið á sem góðar heimildir (og þar fyrir utan minnir mig allir stjórnmálaflokkar og seðlabankastjórar síðustu mánaða hafa einmitt haldið því fram að höftin séu til að og séu að styrkja gengið). 

Kv.

Einar Þór (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 17:07

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Og nú verður fyrst spennandi að vera Íslendingur Jói bara spurning um hvort að maður hefur það af lol

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.4.2009 kl. 20:48

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Einar Þór ef þú hefðir lesið athugasemdina frá mér almennilega þá hefðir þú séð það að gjaldeyrishöftin koma í veg fyrir eðlileg utanríkisviðskipti, sem dæmi get ég nefnt að fyrirtæki hér á landi sem stundar bleikjueldi og selur kílóið af bleikjuflökum á EINA evru/kg til fyrirtækis í eigu sömu aðila, þeir selja svo bleikjuflökin á 15 - 20 evrur/kg.  EIN evra/kg verður í kassanum á Íslandi en 14 - 19 evrur/kg verða eftir í Evrópu.  Þetta er aðeins eitt dæmi eflaust eru þau mörg svona, ef  svona lagað veikir ekki gengið þá veit ég ekki hvað gerir það?  Um það hvort þessi höft beri árangur eru skiptar skoðanir og ekki get ég nú gefið seðlabankastjórum og stjórnmálamönnum háa einkunn fyrir efnahagsstjórnun.

Jóhann Elíasson, 26.4.2009 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband