Hvað á að gera þessa VITLEYSU í mörg sumur?????

Um að gera að byggja "varnargarðana" yfir sumartímann svo þeir geti "horfið" í hafið yfir veturinn.


mbl.is Fyrsta hlassið í Bakkafjöru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Skemmtilegur punktur eða öllu heldur dapurlegur. Hafði ekki spáð í þessa hlið málsins.

Finnur Bárðarson, 16.5.2009 kl. 15:45

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég vona að þetta sé EKKI rétt en ég er hræddur um það.

Jóhann Elíasson, 16.5.2009 kl. 15:59

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll kæri bloggvinur, við skulum ekki vera svona svartsýnir Jóhann, ég held nú að þessir garðar eigi eftir að standa næstu áratugina eins og garðarnir í Þorlákshöfn. 

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 17.5.2009 kl. 00:08

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þetta er ákveðið!!! og við spyrjum að leikslokum Jóhann/þú segir það er of seint að byrgja brunnin og svo framvegis,en þetta er alltof algengt á Íslandi og hefur stundum blessast/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 17.5.2009 kl. 09:53

5 identicon

Mér finnst þetta vera glæsilegt framtak framsýnna manna, hér er ekkert að hverfa, öðru nær.

Svo óska ég landsmönnum öllum, sérstaklega Vestmannaeyingum, til hamingju með þetta djarfa og þarfa framtak!

Róbert Viðar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 17.5.2009 kl. 13:38

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Auðvitað er ekkert að hverfa enda framkvæmdin rétt að byrja og það er að koma sumar.  Hugmyndin er alls ekki ný, menn hafa staðið öldum saman í Bakkafjöru og horft til Eyja og látið sig dreyma um að sigla þar á milli en enginn hefur látið almennilega verða af þessu fyrr ef frá eru taldar tilraunirnar með Skaftfelling, svo við skulum fara varlega í að tala um framsýna menn Róbert og muna að "mey skal lofa að morgni".

Jóhann Elíasson, 17.5.2009 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband