Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2015

VERÐUR HANN BJARGVÆTTUR ÞJÓÐARINNAR EINU SINNI ENN?????

Hann er svo sem ekki óvanur því að þurfa að "taka til", þar sem handónýtir stjórnmálamenn eru búnir að klúðra málum.  Nægir að nefna til Ices(L)ave, það liggur við að það hafi verið fullt starf fyrir hann í langan tíma að koma því í rétt horf á síðasta kjörtímabili.  Og geti hann "lagað eitthvað til eftir" Gunnar Braga líka, er þessi maður orðinn þjóðinni ómetanlegur........... 


mbl.is Forsetinn ræðir við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ VAR NÚ ÁSTÆÐAN FYRIR ÞESSARI FRAMKVÆMD Í UPPHAFI

Forsvarsmenn Siglingastofnunar og fleiri, töldu ekki nokkra ástæðu til að hlusta á viðvörunarraddir, því þeir töldu sig vita allt sem vita þyrftiVAR ÞAÐ ÞÁ BARA FYRIR HEIMÓTTARSKAP OG AULAHÁTT, SEM FARIÐ VAR Í ÞESSA FRAMKVÆMD?????


mbl.is Heimóttarlegt að halda sig vita best
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENDA ER MEIRIHLUTI ÍSLENDINGA SKYNSEMDARFÓLK

En það kemur á óvart, þrátt fyrir hversu augljós útþenslu- og drottnunarstefna ESB er orðin, hversu margir eru samt hliðhollir INNLIMUN í ESB.  INNLIMUN VIRÐIST VERA ORÐIN HREIN TRÚARBRÖGÐ...


mbl.is Meirihlutinn vill ekki í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER FRESTUR TIL ÁFRÝJUNAR SUMS STAÐAR ÓTAKMARKAÐUR??????

Er ekki verið að brjóta mannréttindi á honum með þessu? Það er víst nokkuð sama hvað fólki finnst um þann dóm sem maðurinn hlaut, þetta er niðurstaða dómstóla og verða ekki allir að sætta sig við það fyrst ekki var áfrýjað strax?


mbl.is Áfrýja dómi yfir Pistorius
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÁRRÉTT - EN BARA OF SEINT ATHUGAÐ

Síðast þegar ég vissi þá var Ísland sjálfstætt ríki og þar af leiðandi ætti það að vera með sjálfstæða utanríkisstefnu.  En Skagfirðingurinn sjálfumglaði skipaði ESB-dindil sem ráðuneytisstjóra og virðist fara í einu og öllu eftir því sem ráðuneytisstjórinn segir honum og eitt af því var að það ætti skilyrðislaust að styðja þvingunaraðgerðir ESB gegn Rússum.  Ráðuneytisstjóranum tókst, sem betur fer ekki, að INNLIMA Ísland í ESB, þegar hann var formaður INNLIMUNARNEFNDAR Össurar.  Nú er búið að "planta" honum í Utanríkisráðuneytið, þar sem hann er einskonar "Trójuhestur" INNLIMUNARSINNA.  Eitthvað eru nú skiptar skoðanir um það hvort fjallað hafi verið um málið í ríkisstjórn og er það krafa að rannsókn fari fram á þessu klúðri öllu saman og verði Utanríkisráðherra og ráðuneytisstjórinn látnir bera fulla ábyrgð, komi í ljós að ekki hafi verið staðið rétt að málum.....


mbl.is Bjarni: Efasemdir um þvinganirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN Á AÐ HALDA ÁFRAM AÐ SÓA PENINGUM SKATTBORGARANNA Í ÞETTA ÆVINTÝRI?????

Og gera þetta að öðru "Landeyjarhafnarrugli" á þeirri forsendu að það sé þegar búið að setja svo mikið fjármagn í þetta og gera þá tapið ennþá meira?  Það eru flestir búnir að átta sig á því að á sínum tíma, var þetta gert að "einkaframkvæmd", til þess að ljúga þessi göng framfyrir önnur jarðgöng á landinu.  Flumbrugangurinn var svo mikill að ekki vannst tími í nauðsynlegan undirbúning og rannsóknir og það er verið að bíta úr nálinni með það núna.  Og svo má alltaf deila um það hversu mikil þörf sé á þessum göngum.  Þegar Víkurskarðið er Fnjóskadalurinn yfirleitt mög erfiður ef ekki ófær og ofan á þetta allt þá er gífurleg snjóflóðahætta í Ljósavatnsskarði.  En þá munar auvitað öllu fyrir marga að vera veðurtepptur í væntanlegum Vaðlaheiðargöngum.


mbl.is „Tveir plús tveir verða aldrei fimm“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MANNESKJA SEM "TÖGGUR" ER Í

Það er mikill fengur í því fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hún skuli starfa fyrir hann og flestir eru ánægðir með störf hennar hvort sem þeir styðja ríkisstjórnina eða ekki.


mbl.is Engin ákvörðun um framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KANNSKI ER ÞÁ EITTHVAÐ TIL Í SÖGUNUM SEM HAFA VERIÐ Á KREIKI?

En þær eru flestar á þann veg að ef menn vilji sleppa "létt" út úr náminu þá fari þeir á Bifröst.


mbl.is Gera athugasemdir við prófgráður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓTRÚLEGUR HROKI

Að álíta það að fyrirtækið sé hafið yfir landslög og það sé bara hægt að gera eins þeim sýnistÞarf ekki að fara að endurskoða starfsemi fyrirtækisins og að koma böndum á það?????


mbl.is Isavia höfðar ógildingarmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEIMSBYGGÐINNI STAFAR SÍÐUR EN SVO MEIRI HÆTTA AF RÚSSLANDI EN BANDARÍKJUNUM OG ESB

Eða eru tilburðir ESB (Þjóðverja), til stofnunar "þúsund ára ríkisins" það lymskulegir og vel faldir að einfeldningarnir, sem í daglegu tali nefnast INNLIMUNARSINNAR, eru ekki enn búnir að átta sig á því hvað er í gangi???


mbl.is Sakar ráðherra um heimsku og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband