DÆMIGERÐ "VILLIMENNSKA" HJÁ VINSTRI HJÖRÐINNI, SEM VIRÐIST EKKI EIGA SÉR NEIN TAKMÖRK

Þetta aumingjans lið á bara mjög bágt.  Það þarf að sjálfsögðu að mótmæla því að almenningur býr við mun betri kjör en þegar síðasta ríkisstjórn var við stjórn og um að gera að nota 17 júní til þess, sem ber því vitni hversu "stropað" þetta lið er og ber ekki vott af virðingu fyrir nokkrum sköpuðum hlut. TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN "ALVÖRU" ÍSLENDINGAR!


mbl.is Ísland upprétt í samfélagi þjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jóhann Stýrimaður - sem og aðrir gestir þínir !

O: jæja, Jóhann minn.

Er hún ekki orðin: svolítið útskæld hjá þér, meinta vinstri mennzka þessa eða hins, fornvinur góður ?

Að minnsta kosti: hefi ég sterkan grun um, að þarna hafi mátt finna mörg skoðanasystkini: okkar beggja,sem tök höfðu á að mæta þarna syðra, auk margra annarra, Jóhann minn - sem ÞORÐU að senda afglöpunum Ólafi Ragnari Grímssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugs syni þann tón, sem þeim hæfir bezt, bölvuðum.

Þegar við komum inn í málningarvöru verzlanir Jóhann: bjóðast okkur litaspjöld / með fleirri kostum en : Svörtu - Gráu og Hvítu, ekki satt ?

Þarftu ekki: að fara að endurskoða afstöðu þína, til hinnar margföldu lita flóru í mannlífinu, áður en þú dregur fólk í dilka : vinstra megin - miðju- moðs liðið, eða þá stefnufasta félaga okkar, á hinum þróttmikla Hægri væng, fornvinur góður ?

Þér að segja Jóhann: er sí vaxandi fjöldi samlanda okkar einfaldlega, búnir að fá fullkomið ÓGEÐ einfaldlega á mannskap, eins og Ólafi Rganari / Sigmundi Davíð, og öðrum kumpánum þeirra.

Af hverju: skyldi það nú getað stafað, Jóhann minn ???

Með beztu kveðjum sem endranær - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 14:08

2 identicon

Jóhann veistu hvað er þinn versti vandi? Það er að halda að þetta sé "vinstra lið" það er meira segja ástæðan fyrir því að eftir næstu kosningar munu risaeðlur eins og þú þurkast út og ég afsaka ef ég er dónalegur, það var ekki meiningin. En ég meina það sem ég segi, við erum ekki vinstra lið eða hægra, við erum allstaðar og við skynjum og finnum alla daga að kerfið sem ykkar forfeður, okkar forfeður sköpuðu gengur ekkert upp nema fyrir örfáa. Skítt með hvað vinstri strjórnin gerði eða hvað hrunstjórnin gerði eða hvað þessi skítastjórn gerir, mig hlakkar til þegar anarkistarnir taka við í næstu kosningum, þá fyrst færðu að sjá breytingar ..

Óskar (IP-tala skráð) 17.6.2015 kl. 14:35

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og hvað heldur þú að "anarkistarnir" geri svona gott, Óskar?

Jóhann Elíasson, 17.6.2015 kl. 14:42

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Var ekki Birgitta Jonsdottir að kalla fólk til mótmæla 17. júní? Ég er alveg viss um að Birgitta vilji ekki vers sett á stól með hægri mönnum. Þannig að það má segja að vinstra liðið hafi staðið fyrir þessum skrílslátum á Austurvelli í dag.

Eg las það líka að formaður VG hafi verið að biðja fólk um að mæta á Austurvelli til að vera með skrílslæti meðan að hátíðarhöldin stæðu yfir. En það er ekki alltaf hægt að trúa því sem við lesum.

En er ekki VG formaðurinn að fara i Foresta framboð? Ef svo er, þá er þetta henni til mikillar skammar hafi VG formaðurinn staðið á bakvið skrilslætin á Austurvelli í dag. Ekki kæmi ég til með að kjósa VG formanninn til Forseta.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 17.6.2015 kl. 18:22

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Segjum tveir, nafni.  Eitthvað á hann Óskar erfitt með að svara því hvað "anarkistarnir" komi til með að gera gott, ef þeir komast að.  Kannski hann hafi séð frá mótmælunum á Austurvelli í dag og ofboðið skrílslætin?  Það er með ólíkindum að fullorðið fólk skuli haga sér svona.

Kveðja af Suðurnesjunum

Jóhann Elíasson, 17.6.2015 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband