Föstudagsgrín

Þrír karlar sátu saman yfir glasi. Þeir fóru að ræða um eiginkonur sínar.

Fyrst segir sá dökkhærði - konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu. Nú liggur allt þetta kjöt í þvottahúsinu og við komumst örugglega ekki yfir að éta það áður en það skemmist.

Þá segir sá rauðhærði - konan mín er svo klikkuð, það var útsala á notuðum bílum um daginn og hún keypti sér Toyotu og hún er ekki einu sinni með bílpróf. Nú stendur bíllinn bara framan við húsið okkar óhreyfður.

Þá var ljóshærði karlinn farinn að veltast um af hlátri og segir við félaga sína - ykkur finnst konurnar ykkar ekki gáfulegar, þið ættuð þá að vita hvernig mín er. Hún er úti á Grikklandi með saumaklúbbnum sínum, ha, ha, ha, og hvað haldið þið að hún hafi tekið með sér, ha, ha, ha. Hún tók með sér 50 pakka af smokkum og hún sem er ekki einu sinni með typpi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er sannkallaður tippabrandari.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 08:30

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er upsilon í typpi sauðurinn þinn.

Jóhann Elíasson, 5.2.2016 kl. 09:41

3 identicon

Stafsetningar löggan mætt á svæðið...

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 11:14

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það hefur verið rosalega mikið um stasetningarvillur í öllum þínum kommentum, sem er bara lýsandi fyrir þig og þína heilastarfsemi,.  Ef ég hefði átt að vera að eltast við það allt saman hefði ég ekkert gert annað og ég nebbi hreinlega ekki að vera alltaf að leiðrétta þig því ég veit að það hefur afskaplega lítið upp á sig.  Eins og að standa upp og detta.

Jóhann Elíasson, 5.2.2016 kl. 11:36

5 identicon

Sæll Jóhann, ég vil nú ekki vera leiðinlegur en það eru að minnsta kosti 2 stafsetningarvillur hjá þér þarna síðast annars vegar er orðið nebbi, sem stundum er notað sem gælunafn yfir nef en hefur örugglega átt að vera nenni, og svo stasetningarvilla, en hið rétta orð er stafsetningarvilla, vildi bara leiðrétta þetta hjá þér, það er svo leiðinlegt ef fólk getur ekki komið þessu rétt frá sér.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 12:26

6 Smámynd: Benedikt V. Warén

Er ekki einhver munur á innsláttarvillu og stafsetningarvillu?

Spyr sá sem ekki veit.

Það er væntanlega svipað og með kúk og skít.

Herslumunur!cool

Benedikt V. Warén, 5.2.2016 kl. 14:07

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Góður þessi Nafni.

Ég er nú ekki mikið fyrir stafsetningarlöggu Góða Gáfaða Fólksins og læt þeirra komment sem vind um eyru þjóta. Legg til að þú gerir það sama Nafni.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 5.2.2016 kl. 14:34

8 identicon

Ég veit það ekki Benedikt, eigum við ekki að láta Jóhann um að skera úr því, hann er jú sérfræðingurinn í stafsetningarvillum.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband