VILLANDI FYRIRSÖGN

Menn verða að gera sér grein fyrir því að Lífeyrissjóðirnir eiga ekkertÞeir fjármunir sem eru í VÖRSLU sjóðanna, ERU EIGN FÉLAGSMANNA SJÓÐANNA en í þessu tilfelli hefur EKKI verið tekið tillit til lífeyrisskuldbindinga sjóðsins og er ekki um neitt annað að ræða þarna en hreina FÖLSUN á afkomu hans og stöðu.


mbl.is Hrein eign sjóðsins vaxið um helming
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Félagsmenn öðlast viss réttindi við greiðslur í sjóðina en ekki er um neinn eignarrétt að ræða. Væri um eign að ræða væri hún gefin upp á skattaframtali og þú gætir tekið hana út og/eða látið ganga til erfingja. Þó einhver segi félagsmenn eigendur í einhverri hátíðarræðu þá þarf ekki að taka það alvarlega, sjóðirnir eru sjálfseignastofnanir og félagsmenn eiga ekkert í þeim.

Jós.T. (IP-tala skráð) 2.3.2016 kl. 12:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eru engin takmörk fyrir vitleysunni sem þú lætur frá þér fara?  Þó svo að félagsmenn geri ekki grein fyrir eign sinni í lífeyrissjóðum á skattframtali, þá er hún engu að síður til staðar.  Lífeyrissjóðsgreiðslur eru samkvæmt lögum það er nú bara einu sinni þannig að lífeyrissjóðirnir eru alls ekki eigendur þessara fjármuna og því er það nokkuð hjákákátlegt að lesa það að l´feyrissjóðirnir eigi svo og svo miklar eignir ég hef til að mynda aldrei vitað til þess að lífeyrissjóðirnir hafi nokkurn tíma greitt skatt af þessum "eignum" sínum.

Jóhann Elíasson, 2.3.2016 kl. 14:22

3 identicon

Lífeyrissjóðirnir eru skráðir eigendur þessara fjármuna, ekki við. Og skattleysi rýrir ekki eignarrétt. Lífeyrissjóðirnir telja þetta fram sem sína eign þó ekki sé lagður á þá skattur. Við erum hvergi skráðir eigendur að lífeyrissjóði eða því sem í þeim er. Eign okkar á lífeyrissjóðunum og þeirra eignum er því, eins og með margt annað sem við segjumst eiga, aðeins táknræn og fellur til dæmis ekki undir eignarréttarákvæði stjórnarskrár.

Jós.T. (IP-tala skráð) 2.3.2016 kl. 14:47

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Getur þú þá sagt hvernig stendur á því að þessar "eignir" lífeyrissjóðanna eru ekki skattlagðar?

Jóhann Elíasson, 2.3.2016 kl. 15:04

5 identicon

Hvað er skattlagt, hverjir og hvers vegna er ákvörðun stjórnvalda. Kannski flokka þeir lífeyrissjóðina með trúfélögum.

Jós.T. (IP-tala skráð) 2.3.2016 kl. 15:39

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei, nú fórstu alveg með það. laughing

Jóhann Elíasson, 2.3.2016 kl. 15:49

7 identicon

 Hvert fór hann með það..??

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 2.3.2016 kl. 16:24

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alltaf jafn GÁFULEGAR athugasemdirnar frá þér, Helgi.cool

Jóhann Elíasson, 2.3.2016 kl. 17:44

9 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Það má hugsa sér, að upphaflega hugmyndafræðin bak við stofnun lífeyrissjóana hafi verið sú, að þeir væru eign þeirra sem í sjóðinn greiðir. En ég held að öllum sé það ljóst, að sú hugmyndafræði er löngu komin fyrir bí. 

Jónas Ómar Snorrason, 3.3.2016 kl. 07:38

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta innlegg hjá Jónasi Ómari segir allt sem segja þarf og lýsir lífeyrissjóðakerfinu nokkuð vel.

Jóhann Elíasson, 3.3.2016 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband