VÆRI EKKI EINFALDARA OG ÓDÝRARA AÐ ALÞINGI ÁKVEDDI BARA AÐ DRAGA INNLIMUNARUMSÓKNINA TIL BAKA?

Enda er ekkert nema tíma- og peningasóun að standa í þessu INNLIMUNARKJAFTÆÐI áfram.  Allir sem eru með meira en hálf fimm, sjá að í ESB er ekkert nema leiðindi að sækja.  Það eru  bara einstaklingar innan tveggja stjórnmálaflokka, sem eru á alþingi í dag og annar þeirra heyrir sennilega sögunni til eftir kosningar, sem eru haldnir einhverri ESB-þráhyggju.  Þannig ætti að vera ríflegur meirihluti á alþingi fyrir því að umsóknin verði dregin til baka.  Sennilega myndu ESB-þráhyggjumenn malda í móinn og blása til mótmæla á Austurvelli og hafa uppi stór orð um svik en varla er fólk svo grunnhyggið að það fari að hlaupa eftir svoleiðis loddaraskap?


mbl.is Vilja þjóðaratkvæði um aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Mesta bullið við þetta er auðvitað að spurningin sem lagt er upp með er röng. Rétta spurningin er að sjálfsögðu: Vilt þú að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu? Ekki hvort það eigi að hefja einhverjar viðræðum með einhverju markmiði um einhver aðildarsamning. Sá samningur (Lissabon sáttmálinn) hefur nefninlega legið fyrir í íslenskri þýðingu í fimm ár. Það væri hrein móðgun við kjósendur að leggja fyrir þá atkvæðaseðla með rangri og villandi spurningu.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.8.2016 kl. 13:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg rétt hjá þér Guðmundur, því það að halda viðræðum áfram þýðir í rauninni bara eitt........

Jóhann Elíasson, 19.8.2016 kl. 15:12

3 identicon

Beiðni Bjartrar framtíðar er bæði eðlileg og skiljanleg, þeir eru einfaldlega að biðja Framsjalla um að efna kosningaloforð sín, um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður en sósuhausar eins og þið skiljið náttúrulega ekki hvað það er að efna kosningaloforð.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 19.8.2016 kl. 16:01

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, alltaf sér maður það betur og betur hversu bágt þú átt. wink

Jóhann Elíasson, 19.8.2016 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband