AUÐVITAÐ ER "VINSTRI HJÖRÐIN" ALVEG Í SJOKKI OG ÞEIR SEM ALDREI HAFA TREYST SÉR TIL AÐ TAKA AFSTÖÐU TIL EINS EÐA NEINS

Það var sérstaklega áhugavert að fylgjast með viðbrögðunum á hinu "hlutlausa" RÚV í aukafréttatímanum áðanÞar kom Ingólfur Bjarni Sigfússon fram næstum grátkökkur af geðshræringu og var allt að því með heimsendaspár vegna úrslitannaSamt er nú skondnust fréttin af því að Oddný Harðardóttir hafi farið að gráta, þegar henni bárust úrslitinHún var rétt búin að þerra tárin eftir afhroð LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR í kosningunum í haustÞað á ekki af manneskjuræflinum að ganga.......... cool


mbl.is Harmi slegin en ekki hissa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verð að segja eins og er að ég var líka harmi slegin yfir miklu fylgi Pírata og

VG í síðustu kosningu en öfugt við Birgittu þá varð ég líka stein hissa.

Örlygur Kvaran (IP-tala skráð) 9.11.2016 kl. 13:27

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er mest undrandi á viðbrögðum þeirra sem mbl.is leitar til, það er eins og fólk átti sig ekki á því hver Hillary er og hvaða mann hún hefur að geyma. Kannski vegna þess að almennir fjölmiðlar vestra, þeirra sem íslenskir fjölmiðlar apa eftir, leyna staðreyndum um hana.

Í flestum "siðvænum" löndum hefðu þeir sem berir eru að því að brjóta lög og reglur varðandi meðhöndlun gagna sem varðar þjóðaröryggi ákærðir fyrir landráð og stungið í steininn í að minnsta kosti 20ár. Það sem bjargar Hillary er vinátta hennar við Barack og Lorettu samflokksmenn hennar sem haldið hafa hlífiskildi yfir henni. Loretta þessi er dómsmálaráðherra og sú sem Bill átti fund með í einkaflugvél Lorettu og samdi við hana um að ef hún yrði góð stelpa fengi hún að halda starfi sínu í forsetatíð eiginkonu hans. Eins og allir nú vita fór það á annan veg og má gera ráð fyrir því að Loretta þessi sé ekki í góðum málum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 9.11.2016 kl. 14:07

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Trump vann, dollarinn féll, og kostar nú það sama í krónum og fyrir hrun.

#efnahagsbatinn2016

Guðmundur Ásgeirsson, 9.11.2016 kl. 15:05

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kannski maður notfæri sér þetta "taugaveiklunarhrun" dollarans og panti bækur frá Bandaríkjunum.  Nú ætti að vera veisla hjá námsmönnum... wink

Jóhann Elíasson, 9.11.2016 kl. 15:10

5 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Einn bezti forseti okkar tíma Ronnie Reagan átti að verða stórhættulegur stríðsathafnamaður, en reyndin varð önnur, Ronnie var eins og friðarDúfa.

Öfgva fólk er alltaf með einhverjar stór yfirlýsingar um eitthavð sem enginn fótur er fyrir og það veit lítið sem ekkert um.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 9.11.2016 kl. 16:20

6 Smámynd: Hrossabrestur

 Góður punktur hjá Jóhanni, gleymum ekki hvað elítan sagði að gerast myndi þegar við felldum Iceslave.

Hrossabrestur, 9.11.2016 kl. 16:35

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já nafni, eru menn ekki fyrirfram að gefa sér eitthvað kjaftæði, sem enginn fótur er fyrir.  Þetta er mjög gott dæmi sem þú nefndir með Ronald Reagan, sem svo reyndist einn af betri forsetum Bandaríkjanna.

Kveðja af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 9.11.2016 kl. 16:47

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, öllum ætti að vera í fersku minni spádómarnir um "KÚBU NORÐURSINS" og fleiri þess háttar misgáfuleg ummæli.. wink cool

Jóhann Elíasson, 9.11.2016 kl. 16:50

9 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Guðmundur Ásgeirsson,

Dollarinn hefur EKKI fallið og verðbréfamarkaðurinn á eðlilegur róli eins og engar kosningar hafi átt sér stað. En það er ekkert óalgengt að hreyfing komist á gengi gjaldmiðla og/eða verðbréfamarkaða einkom og sér í lagi þegar forsetaskipti eiga sér stað í USA, á slíku hefði ekki síður mátt eiga von á hefði Hillary farið með sigur af hólmi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 9.11.2016 kl. 16:54

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það gerðist nú bara við það að hæstiréttur BNA hætti við að rannsaka frekar tölvupósts samskipti frú Clinton.

 Skammgóður vermir það!

 Því fólk átti þennan eina dag til að nota x-ið sitt til fjörugra ára.<það má líka gráta af gleði.

Helga Kristjánsdóttir, 10.11.2016 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband