Að tala núna um bremsur á bremsulausu ökutæki.

Hvar hefur maðurinn eiginlega verið?  Ekki hefur hann verið, ásamt dýralækninum að stjórna efnahag þjóðarinnar og talar hann um að innlendar fjármálastofnanir þurfi að "stíga snöggt á bremsurnar".  Hann bauð sjálfur upp á þessa óreiðu og óráðsíu í rekstri bankanna.  Óráðsían og bruðlið var svo gengdarlaust í rekstri viðskiptabankanna og Forsætisráðherra "kynnti" undir með því að lofa útrásina jafnframt því sem hann lýsti blessun sinni yfir hávaxtastefnu þeirra og jafnframt varði hann vísitölubindinguna á lánin, sem ekki er við lýði hjá þjóðum sem við Íslendingar viljum láta bera okkur saman við.  Svo þegar allt er komið í kalda kol þá byrjar hann að "undirbúa" það að við sauðsvartur almúginn greiðum fyrir misgjörðir ÚTRÁSARPRINSANNA, auðvitað geta þeir ekki borgað þetta því þá myndu þeir missa einkaþoturnar sínar og "sumarhallirnar" víða um heiminn.  Það er ekki nokkur vafi, í mínum huga, að fræg grein Bjarna Benediktssonar og Illuga Gunnarssonar, í Morgunblaðinu fyrir skömmu, var hluti af þeirri ráðagerð að almenningur greiddi fyrir mistökin í útrásinni með "fátækragjaldmiðlinum" með okurvöxtum og verðtryggingu.  Og ekki er hægt að gera ráð fyrir því að farið verði að reka viðskiptabankana eins og hjá mönnum núna frekar en áður.
mbl.is Forsætisráðherra: Hefur slæm áhrif þegar stíga þarf snöggt á bremsurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessir tvímenningar sem þú vitnar til gerðu góða för í fjölmiðla.

Þeir opinberuðu þá pólitísku sýn Sjálfstæðisflokksins að þjóðin eigi að borga fyrir þegar fjármálamógularnir fara offari af fyrirhyggjulausri græðgi.

Bankarnir verði að eiga bakland hjá þjóðinni með því að þjóðin forði þeim frá vondum timburmönnum.

Hverjir voru þeir sem tímabundið græddu á ótrúlega skömmum en fyrirferðarmiklum þenslutíma í íbúðabyggingum? Mikið var öll sú gróska dásömuð af stjórnvöldum.

Við öll vitum hverjir græddu. En við sjáum líka hverjir eiga að taka við bakslaginu.

Um það ástand verða líklega færri og fábrotnari lýsingarorð notuð. 

Árni Gunnarsson, 4.3.2008 kl. 22:05

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Að mínu viti voru "tvímenningarnir" bara að undirbúa það að almenningur myndi losa bankana og útrásarprinsana úr snörunni.

Jóhann Elíasson, 4.3.2008 kl. 23:20

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Satt Jóhann!!!! við erum beltin og axlarböndin/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 4.3.2008 kl. 23:21

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já stórhlægilegt Jóhann.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.3.2008 kl. 02:26

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við verðum að vera á varðbergi og mótmæla hástöfum ef þeir ætla að bjarga stóreignamönnunum í bönkunum.  Þeir hafa fengið nóg frá okkur, næst eru það öryrkjar og fátækt og veikt fólk sem þarf á aðstoð að halda.  Ekki þegja lengur, látum í okkur heyra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2008 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband