Hvernig KJAFTAR hann sig út úr þessu??????

Um 2/3 hlutur þingmanna er fylgjandi hvalveiðum, um 80 % þjóðarinnar er fylgjandi hvalveiðum en  V G með Steingrím J. eru á móti hvalveiðum.  Hann Á að túlka vilja þjóðarinnar ,ríkisstjórnin á að gera það en hingað til hefur bara verið farið að eigin geðþótta en stjórnmálamönnum er að verða það ljóst að almenningur sættir sig ekki lengur við þess háttar vinnubrögð.  Líklega var Steingrími J. ljóst að hann varð að láta í minni pokann, eftir fundinn á Akranesi í gærkvöldi.  Ég held að til þess að halda andlitinu, þá tilkynni Steingrímur, eftir svona tvær til þrjár vikur, að hann hafi að vandlega athuguðu máli ákveðið að láta ákvörðun fyrrirennara síns, um leyfi til hvalveiða, standa óbreytta.
mbl.is Utandagskrárumræða um hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Sennilega sannspar Jói

Jón Aðalsteinn Jónsson, 6.2.2009 kl. 22:30

2 Smámynd: Jón Arnar

Hann á að túlka skoðanir sínar og sinna stuðningsmanna fyrst og fremst ikk?

Jón Arnar, 6.2.2009 kl. 22:33

3 Smámynd: Gísli Már Marinósson

Sæll Jóhann. Þeir hafa löngum haft kjaftinn fyrir neðan nefið Gunnarsstaðamenn, sérstaklega Steingrímur. En ef hann ætlar sér að halda embættinu fram að kosningum þá ætti hann að spara stóru orðin, og halda sig við ákvarðanir fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, og bæta um betur, gefa frjálsar veiðar kvótalausra smábáta til handfæraveiða með hámarksafla t.d. 15000 tonn.

Gísli Már Marinósson, 6.2.2009 kl. 23:09

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gísli, ég vona að ég hafi rétt fyrir mér, en þekkjumst við ekki frá Þórshöfn á Langanesi?  Ef svo er þá er gaman að hitta þig fyrir hér á blogginu og mig grunar að ekki sé svo langt á milli okkar, ég hefði gaman af að hitta þig en ég bý á Keflavíkurflugvelli.

Jóhann Elíasson, 6.2.2009 kl. 23:20

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég mundi ekki fullyrða neitt um niðurstöðu SJS. Mer finnst reyndar frekar ólíklegt að hann haldi sig við ákvörðun EJG óbreytta og þá er ég að tala um úthlutum til 5 ára. Taki SJS þann pól í hæðina að hvalveiðar verði heimilaðar, þá mundi ég telja líoklegra að hann léti þetta fiskveiðiár duga.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.2.2009 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband