SVONA ÁKVÆÐI ÆTTI AÐ VERA Í SAMNINGUM ALLRA VERKKAUPA

Það er til háborinnar skammar hversu vinnumansal hefur verið algengt hér á Íslandi.  Vandamálið hefur lengi verið þekkt hér á landi og mér er kunnugt um að það var mikið um þetta á árunum fyrir hrun og nú virðist þetta vera að aukast aftur.  En hvernig stendur á að það er svona erfitt að stoppa þetta?


mbl.is Ákvæði um mansal bætt við útboðsskilmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÁTTU ÞAKKA FYRIR ÞESSI TVÖ STIG................

Tékkarnir voru bara slakir (hálfgerðir gúmíTékkar). Það sem hélt þeim á floti í þessum leik var ævitýralega góð markvarsla, sem gerði það að verkum  að þeir héngu inni í leiknum.  Á meðan glímdi Íslenska liðið við arfaslaka markvörslu, stundum velti maður fyrir sér hvað væri eiginlegi verið að púkka upp á Björgvin Pál?  Það er ekki hægt að segja, ef er farið yfir ferilinn hjá honum, að hann sé mjög glæsilegur.  Hann er "stemmingakall", sem hrekkur kannski í gang í 10 hverjum leik.  Hann hefur aldrei sýnt neinn stöðugleika.  Svo er áhyggjuefni hversu oft liðið er að fá á sig klaufalegar 2 mínútur og svo sjást varla lengur þessi skemmtilegu hraðaupphlaup, sem voru einkennismerki Íslenska liðsins hér áður fyrr.  En það er ansi margt sem Geir Sveinsson og Óskar Bjarni þurfa að laga ef liðið á að komast áfram...


mbl.is Íslenskur sigur í háspennuleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NOKKUÐ AUGLJÓST ER AÐ SÍ VERÐUR AÐ LÆKKA STÝRIVEXTINA

Það verður að senda SKÝR skilaboð, það er hálfkák að lækka vextina aðeins um hálft prósent einu sinni og hefur ekkert að segja, heldur verður að lækka vextina um minnst 1% og láta vita að þarna sé um að ræða UPPHAFIÐ AF LENGRA FERLI.


mbl.is Ætti að hringja viðvörunarbjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ VERÐA NÝIR ÞINGMENN AÐ STANDA Í LAPPIRNAR - FORSETINN ER BÚINN AÐ GEFA TÓNINN

Þeir hljóta að geta afturkallað þessa ákvörðun Kjararáðs.  Það verður ekki séð að þessi ákvörðun sé studd með góðum rökum og þá ekki algjörlega í samræmi við lög heldur líkist þetta meira einhverri geðþóttaákvörðun.  Það getur ekki verið mikið mál að hnekkja þessu óhæfuverki?


mbl.is „Ég þarf ekki þessa kauphækkun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

REYNDAR ER ÞETTA NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM NEI-SINNAR HAFA ALLTAF HALDIÐ FRAM

En INNLIMUNARSINNAR hafa alltaf verið að bera á móti og vísvitandi verið að ljúga að þjóðinni að til væri eitthvað sem héti samningur.  Nú er þetta bara komið alveg á hreint, ÞAÐ ER BARA VERIÐ AÐ SEMJA UM ÞAÐ HVERSU HRATT UMSÓKNARRÍKIÐ AÐLAGIST LÖGUM OG REGLUM ESB OG ÞAÐ ERU ENGAR VARANLEGAR UNDANÞÁGUR VEITTAR


mbl.is Reglur ESB „óumsemjanlegar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ ER MÆLIRINN FULLUR - MEIRA AÐ SEGJA BLINDFULLUR

Nú hlýtur krafan að vera að bætur aldraðra og öryrkja verði settar undir kjararáð.  Hver ætli viðmiðunarhópurinn verði????  Nú hlýtur allt að fara á hvolf í þjóðfélaginu og nú er endanlega búið að setja kjaramál landsmanna í hnút.  Það ætti að leggja þetta kjararáð af í það minnsta er það algjört lágmark að það hafi einhverja smá jarðtengingu og sé aðeins í sambandi við fólkið í landinu....


mbl.is Jafna laun þingmanna og dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband